Viðskipti innlent

Hagnaður olíufélagsins N1 nam 624 milljónum

Hagnaður olíufélagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 624 milljónum kr. en þær voru tæpir 5,5 milljarðar kr. á sama tímabili í fyrra. Munurinn liggur aðallega í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í fyrra, ,eða svokallaðri skuldahreinsun, sem gaf af sér 4,8 milljarða kr.

Í tilkynningu um uppgjörið segir að rekstrartekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins námu 28,7 milljörðum kr. samanborið við 24,6 milljarða kr. á sama tímabili í fyrra. Aukningin var mest á öðrum ársfjórðungi vegna hærra olíuverðs og aukinna opinberra gjalda á eldsneyti að því að er segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×