Hagnaður hjá Kaupás en Byko tapaði 12. september 2012 07:00 Jón Helgi Guðmundsson og félög tengd honum eru aðaleigendur Norvikur, sem á bæði Byko og Kaupás. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Byko ehf. tapaði 352,4 milljónum króna á síðasta ári. Það er aðeins minna tap en árið áður þegar félagið tapaði 416,4 milljónum króna. Á sama tíma hagnaðist Kaupás, sem er systurfélag Byko, um 532 milljónir króna. Norvik hf., fjárfestingafélag sem er að stærstum hluta í Jóns Helga Guðmundssonar og félaga sem tengjast honum, er eigandi bæði Byko og Kaupáss. Norvik hefur ekki skilað inn ársreikningi fyrir árið 2011. Í ársreikningi Byko er sagt frá því að í ársbyrjun 2011 hafi félaginu verið „skipt í fimm félög, þar sem rekstri og efnahagi Elko, Intersport, Húsgagnahallarinnar og Egils vélaverkstæðis var skipt út úr Byko ehf.“. Velta Byko jókst um tæpar 400 milljónir króna á milli ára og var 10,5 milljarðar króna í fyrra. Tap félagsins, 352,4 milljónir króna, var aðeins minna en árið 2010, þegar félagið tapaði 416,4 milljónum króna. Kaupás gekk hins vegar mun betur. Félagið, sem rak verslanir Nóatúns, Krónunnar, 11-11 og Kjarval á síðasta ári, hagnaðist um 532 milljónir króna. Vegna þessa lagði stjórn þess til að greiða eiganda félagsins hálfan milljarð króna í arð. Kaupás hagnaðist um 463,8 milljónir króna á árinu 2010 en greiddi ekki út arð til eigenda sinna vegna þess rekstrarárangurs. Velta félagsins jókst um 800 milljónir króna á síðasta ári og var 22,8 milljarðar króna. Í mars 2012 voru 11-11 verslanirnar seldar út úr Kaupási til Tíu ellefu ehf. með fyrirvara um samþykkt Samkeppniseftirlitsins. Það samþykki fékkst í lok júní síðastliðins.- þsj
Tengdar fréttir Virði Árvakurs lækkar í bókum eigenda 12. september 2012 00:01 Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira