Eik eykur hlutafé um tvo milljarða króna 15. ágúst 2012 11:00 Stærsti einstaki leigutaki Eikar er Húsasmiðjan. Endursamið var um leigu fyrirtækisins þegar það var endurskipulagt. Forstjóri Eikar segir það auðvitað hafa haft áhrif á greiðsluflæði félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Eik fasteignafélag seldi nýtt hlutafé fyrir tæplega tvo milljarða króna í lokuðu útboði í júní síðastliðnum. Kaupendur voru fagfjárfestar, að mestu lífeyrissjóðir, og einstaklingar. Lýsing hf., sem var stærsti einstaki eigandi Eikar um síðustu áramót, tók ekki þátt í því. Féð sem fékkst fyrir hina nýju hluti var notað til að greiða niður skuldir félagsins. Eik vinnur auk þess að því að klára endurfjármögnun á skuldum sínum ásamt fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, að hún muni minnka vaxtakostnað félagsins umtalsvert. Til stendur að endurfjármögnun ljúki í september. Eik kláraði fjárahagslega endurskipulagningu sína í fyrrasumar. Þá gerði félagið samkomulag við óveðtryggða lánveitendur, sem átt höfðu skuldabréf í flokki sem það gaf út, um að þeir breyttu skuldum í eigið fé upp á 3,1 milljarð króna. Þetta var gert með útgáfu á nýju hlutafé. Auk þess var samið við aðra lánveitendur Eikar um að lengja í greiðsluferli langtímalána. Að sögn Garðars fengu þeir sem áttu skuldabréf á Eik hátt í hundrað prósent endurheimtir með þessari aðgerð. „Við gerum síðan ráð fyrir að þær endurheimtir verði rúmlega það þegar kemur að því að Eik fari á markað.“ Garðar segir skráningu vera framtíðarmúsík, en þó sé ekki of langt þangað til hún gæti orðið að veruleika. Ráðist var í lokað hlutafjárútboð í júní síðastliðnum og voru 583 milljón hlutir seldir á genginu 3,15 krónur á hlut. Alls var söluandvirði hlutafjárins því rúmlega 1,8 milljarðar króna. Auk þess er heimild í samþykktum Eikar til að hækka hlutafé um 55,6 milljónir króna til viðbótar á sama gengi. Garðar segir að Eik hafi verið heimilt að selja enn meira, en ákveðið hafi verið að gera það ekki. „Við erum mjög sáttir með niðurstöðuna. Við erum síðan að fara að ráðast í endurfjármögnun á næstunni þar sem vaxtaprósenta lána mun lækka verulega. Staða Eikar verður því orðin mjög sterk eftir þessar aðgerðir.“ Arion banki breytti rúmlega 240 milljóna króna kröfu á hendur Eik í nýtt hlutafé í maí síðastliðnum. Þá var gengi viðskiptanna fjórar krónur á hlut. Rúmum mánuði síðar var nýtt hlutafé hins vegar selt á 3,15 krónur. Að sögn Garðars var ákveðið að gefa væntanlegum fjárfestum afslátt í því útboði. Gengið hafi verið lægra en það sem stjórnendur Eikar telja virði félagsins vera. Eik skilaði ársreikningi fyrir árið 2011 í júní síðastliðnum. Þar kemur fram að félagið hafi hagnast um tíu milljónir króna í fyrra og að eigið fé þess hafi verið um fjórir milljarðar króna um síðustu áramót. Eignir félagsins voru metnar á 19,9 milljarða króna í lok síðasta árs og skuldir þess voru um sextán milljarðar króna. Endurskoðandi Eikar bendir á í reikningnum að gangvirði fjárfestingaeigna félagsins sé byggt á mati stjórnenda á þróun ýmissa þátta í framtíðinni. Raunverulegt gangverð kunni að vera frábrugðið því mati. Orðrétt segir síðan að „við núverandi aðstæður í íslensku efnahagslífi er meiri óvissa en ella um raunverulegt verðmæti eigna“. Garðar segir verðmat eigna miða við sjóðstreymisvæntingar, enda séu alltof fá viðskipti á markaði til að miða við þau til að finna út markaðsverð. Hann telur Eik meta eignir með svipuðum hætti og önnur fasteignafélög. „Það væri mun auðveldara að finna út markaðsverð ef við hefðum sýnilegan markað. Hann er hins vegar ekki mjög sýnilegur hérna.“
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Sjá meira