Viðskipti innlent

Ríkiskaup brutu lög þegar samið var við Icelandair

Kærunefnd útboðsmála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ríkiskaup hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup þegar tilboði Icelandair í útboði um flugsæti til og frá Íslandi í mars á síðasta ári var tekið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express (IE).

Í úrskurði kærunefndar kemur fram að að ríkið sé skaðabótaskylt gagnvart Iceland Express og það skuli greiða Iceland Express fjögur hundruð þúsund krónur í málskostnað vegna málsins. Kærunefndin fellst hinsvegar ekki á að ógilda beri eða endurtaka útboðið þar sem að lög heimili henni það ekki.

Í tilkynningu Iceland Express kemur fram að tilboð Iceland Express hlaut 92,96 stig af 100 mögulegum í útboðinu en Icelandair 53,57 stig.

Ríkiskaup tók báðum tilboðunum og gerði rammasamning við bæði félögin, en ríkisstofnanir hafa átt sáralítil viðskipti á grundvelli samningsins við Iceland Express. Þá ákvað ríkið þrátt fyrir mótmæli Iceland Express að setja ekki skorður á punktasöfnun ríkisstarfsmanna með miðakaupum hjá Icelandair, sem skekkir mjög samkeppnisstöðuna að mati IE.

Ríkisstarfsmenn hafa þannig persónulegan ávinning af samningi Ríkiskaupa við Icelandair. Um töluverðar fjárhæðir er að ræða þar sem rammasamningurinn er metinn á 800 til 1.000 milljónir króna, ár hvert.

Þá segir í tilkynningu IE að Félag atvinnurekenda hafi fyrir hönd Iceland Express óskað eftir gögnum frá Ríkiskaupum svo meta megi það fjárhagstjón sem félagið hefur orðið fyrir og mun í framhaldinu óska eftir viðræðum um hvernig það tjón verði bætt.

Hér fyrir neðan má lesa tilkynningu Iceland Express í heild sinni.

Kærunefnd útboðsmála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Ríkiskaup hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup þegar tilboði Icelandair í útboði um flugsæti til og frá Íslandi í mars á síðasta ári var tekið. Kærunefndin telur að tilboð Iceland Express hafi verið mun hagstæðara en tilboð Icelandair samkvæmt þeim forsendum sem lagðar voru til grundvallar útboðinu. Allt að 200 % verðmunur var á milli tilboðanna.

Tilboð Iceland Express hlaut 92,96 stig af 100 mögulegum í útboðinu en Icelandair 53,57 stig. Ríkiskaup tók báðum tilboðunum og gerði rammasamning við bæði félögin, en ríkisstofnanir hafa átt sáralítil viðskipti á grundvelli samningsins við Iceland Express. Þá ákvað ríkið þrátt fyrir mótmæli Iceland Express að setja ekki skorður á punktasöfnun ríkisstarfsmanna með miðakaupum hjá Icelandair, sem skekkir mjög samkeppnisstöðuna. Ríkisstarfsmenn hafa þannig persónulegan ávinning af þessum óhagstæða samningi Ríkiskaupa við Icelandair. Um töluverðar fjárhæðir er að ræða þar sem rammasamningurinn er metinn á 800 til 1.000 milljónir króna, ár hvert.

Við opnun tilboða hjá Ríkiskaupum voru tilboð bjóðenda hvorki lesin upp né birt eins og skylt er í slíkum opinberum útboðum skv. lögum. Iceland Express krafðist þess að fá aðgang að tilboði Icelandair en því hafnaði Ríkiskaup. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem tæplega ári síðar úrskurðaði að Iceland Express skyldi fá aðgang að gögnunum. Eftir að lögmenn Félags atvinnurekenda, sem rekið hafa þetta mál fyrir Iceland Express, höfðu metið gögnin var útboðið kært til kærunefndar útboðsmála.

Kærunefndin rekur í úrskurði sínum hvernig Ríkiskaup braut gegn Iceland Express. Úrskurður kærunefndar er meðfylgjandi. Þar segir m.a. orðrétt: „Kærunefnd útboðsmála telur þannig að tilboð kæranda hafi verið hagkvæmasta tilboð sem barst í hinu kærða útboði og að verulega miklu hafi munað á tilboði kæranda og Icelandair. Kærði braut þannig gegn lögum um opinber innkaup með því að velja tilboð Icelandair."

Kærunefndin fellst ekki á að ógilda beri eða endurtaka útboðið þar sem að lög heimili henni það ekki, en kemst að þeirri niðurstöðu að ríkið sé skaðabótaskylt gagnvart Iceland Express og það skuli greiða Iceland Express málskostnað.

Félag atvinnurekenda telur mikilvægt að opinberar stofnanir vandi vel til verka við framkvæmd útboða þar sem tjón fyrirtækja sem brotið er á sem og ríkissjóðs getur verið umtalsvert. Slíkt tjón er sóun á verðmætum sem eru í eigu almennings auk þess sem það stendur í vegi fyrir eðlilegri samkeppni.

Félag atvinnurekenda hefur fyrir hönd Iceland Express óskað eftir gögnum frá Ríkiskaupum svo meta megi það fjárhagstjón sem félagið hefur orðið fyrir og mun í framhaldinu óska eftir viðræðum um hvernig það tjón verði bætt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×