Vilja fá 34 milljarða 17. janúar 2012 18:42
Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt fyrrverandi bankaráði Landsbanka Íslands og fyrrverandi bankastjórum og krafið þá um samtals þrjátíu og fjóra milljarða króna vegna gífurlegs útflæðis fjármagns úr bankanum daginn áður en hann féll. Björgólfi Guðmundssyni er ekki stefnt þar sem hann hefur verið úrskurðaður gjaldþrota Slitastjórn Landsbankans stefnir þeim Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, fyrrverandi bankastjórum Landsbankans, og bankaráðsmönnunum Kjartani Gunnarssyni, Andra Sveinssyni, Þorgeiri Baldurssyni og Svöfu Grönfeldt og Jóni Þorsteini Oddleifssyni, sem var yfirmaður fjárstýringar hjá Landsbankanum. Búið er að birta stefnurnar en auk þessara sjö stefnir slitastjórnin vátryggingarfélögum sem gáfu út ábyrgðartryggingar fyrir stjórnarmenn og stjórnendur bankans. Þetta eru alls 32 aðilar, þar af fjölmargir starfsmenn Lloyd's tryggingarfélagsins í Lundúnum og Brit Insurance, Allianz, Liberty Mutual, QBE og fleiri. Gerð er krafa um að stjórnendur bankans greiði skaðabætur vegna gáleysis sem leiddi til þess að greiddir voru verulegir fjármunir út úr Landsbankanum 6. október 2008, daginn sem neyðarlögin voru sett, daginn áður en Landsbankinn féll. Fram kemur í stefnunni að þennan dag hafi umtalsverðir fjármunir runnið frá bankanum til verðbréfasjóða Landsvaka, Straums Burðaráss, sem var eigu sömu eigenda og Landsbankinn og MP Fjárfestingarbanka, gamla MP banka. Slitastjórn lítur svo á að með þessum greiðslum hafi verðmæti eigna bankans verið rýrt verulega þegar stjórnendum mátti vera ljóst að hann væri í vandræðum og þá hafi kröfuhöfum bankans verið mismunað. Samtals voru þetta 34 milljarðar króna sem runnu út úr bankanum þann 6. október sem stjórnendurnir eru nú krafðir um. Fram kemur í stefnunni að kröfur sem keyptar voru af Landsvaka voru keyptar á umtalsverðu yfirverði og greiðslur til Straums og MP banka voru greiddar eftir ávarp forsætisráðherra þar sem tilkynnt var um yfirvofandi hrun íslenska bankakerfisins og eftir lokun bankans á þessum örlagaríka degi. Hinir sjö bankaráðsmenn og stjórnendur eru krafðir um samtals 34 milljarða króna, sem þeir eru sameiginlega krafðir um, þ.e in solidum, sem þýðir að þrotabúi bankans getur gengið að hverjum og einum þeirra fyrir allri upphæðinni vinnist málið fyrir dómi. Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir þetta fólk og tapist málið gæti það þýtt gjaldþrot fyrir þau öll eða einhver þeirra.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent