Unga fjölskyldufólkið aftur í utanlandsferðir 4. apríl 2012 07:00 Sólarlandaferðirnar eru yfirleitt styttri nú en fyrir hrun, auk þess sem líklegra er að fólk ferðist til nærliggjandi lands frekar en að fara á framandi slóðir segir forstjóri Úrvals-Útsýnar. Fréttablaðið/AP
Um 26.500 Íslendingar fóru af landi brott til lengri eða skemmri tíma í nýliðnum marsmánuði. Það eru um 855 á dag að meðaltali, sem er um sautján prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. Enn vantar talsvert upp á að ná þeim fjölda utanlandsferða sem landsmenn fóru í árin fyrir hrun. Í mars 2008 fóru um 38.600 Íslendingar úr landi, eða um 1.250 á hverjum degi að meðaltali. Utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um næstum helming í kjölfar hrunsins haustið 2008, eins og lesa má úr tölum Ferðamálastofu. Síðan hefur fjöldi utanlandsferða aukist hægt og bítandi. Í mars síðastliðnum voru farnar umtalsvert fleiri ferðir en í mars 2004, en ekki jafn margar og í sama mánuði á árunum 2005 til 2008. Alls fóru 71.100 Íslendingar af landi brott á fyrsta ársfjórðungi ársins, sem er um níu prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Eins og bent er á í morgunkorni frá Greiningu Íslandsbanka hefur gengi krónunnar veikst um sex prósent á árinu. Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri ferðaskrifstofunnar Úrval-Útsýn, segir að hrunið hafi bitnað mun meira á fólki á aldrinum 30 til 50 ára en á þeim sem eldri eru. Algert hrun hafi orðið í ferðum ungs fjölskyldufólks, en fólk yfir fimmtugu hafi áfram ferðast þrátt fyrir hrunið. Nú virðist unga fjölskyldufólkið aftur vera farið að ferðast, og segir Þorsteinn að um 50 prósenta aukning hafi verið í sölu til þessa aldurshóps í fyrra. Ferðirnar eru þó öðruvísi samsettar en fyrir hrun. Fjölskyldufólkið fer almennt í styttri ferðir en áður, meðaltalið er um tíu dagar en var tólf áður, segir Þorsteinn. Þá fer fólk oft styttri vegalengdir en á árunum fyrir hrun. „Á árunum 2006 og 2007 vildu margir komast á framandi slóðir. Nú veit ég ekki hvort ævintýraþráin hafi minnkað eða fólk þurfi að hugsa meira um kjörin, en fólk fer frekar á hefðbundnari slóðir í dag,“ segir Þorsteinn. Hann segir fólk einnig velja í mun meiri mæli en áður að fara í ferðir þar sem allt sé innifalið á gististaðnum. Það hafi verið nær óþekkt fyrir hrun, en nú vilji fólk það gjarnan til að halda útgjöldunum í lágmarki.brjann@frettabladid.is
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira