Vill að fé á dauðum bankareikningum fari til samfélagsmála 4. apríl 2012 11:23
Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins vill að það fé sem nú liggur inni á dauðum bankareikningum verði notað til nýsköpunar- og samfélagsmála. Fram kom í svari við fyrirspurn Eyglóar á Alþingi að ríflega 1,5 milljarður króna væri inn á íslenskum bankareikningum sem ekki höfðu verið hreyfðir í 15 ár eða lengur. „Ástæða þess að ég óskaði eftir þessum upplýsingum var til að átta mig á hversu háar upphæðir stæðu á innlánsreikningum sem enginn hefði vitjað í yfir 15 ár. Margar ástæður geta verið fyrir því að peningar liggi óhreyfðir inni á reikningum, svo sem að eigandinn hafi látist og enginn gert kröfu um féð," segir Eygló. „Bretar settu lög árið 2008 um reikninga af þessu tagi þar sem stjórnvöldum var heimilað að taka þá yfir ef þeirra hefði ekki verið vitjað í 15 ár. Settur var á stofn sjóður sem úthlutar fjármagni til nýsköpunar og samfélagsmála og í fyrra úthlutaði sjóðurinn rúmum 3 milljónum punda, eða um 600 milljónum króna í slík verkefni." Eygló segir að í bresku lögunum eru jafnframt skýr ákvæði um að gefi eigandi reiknings sig fram eftir að peningarnir hafa runnið í sjóðinn skal ríkissjóður endurgreiða honum fjármunina auk vaxta. Í íslenskum lögum liggja peningarnir inni í bönkum á meðan þeirra er ekki vitað og geta bankarnir ráðstafað þeim eins og þeim sýnist, líkt og á við um önnur innlán. „Hafi engin hreyfing verið á reikningnum í 20 ár fellur krafa reikningseigandans niður og bankinn eignast féð, svo framarlega sem hann geti sýnt fram á að gerð hafi verið tilraun til að hafa uppi á eigandanum. Engin ákvæði eru um endurkröfurétt að þessum 20 árum liðnum. Ef bankinn lætur hjá líða að leita eigandans helst krafan virk, en féð liggur samt sem áður inni á reikningi, til ráðstöfunar fyrir bankann," segir Eygló. „Ég tel eðlilegt að skoða hvort ekki væri hægt að fara sömu leið og Bretar hafa gert og nýta þá fjármuni sem liggja inni á munaðarlausum bankareikningum til samfélagslegra verkefna í stað þess að láta þá velkjast um í bankahítinni."
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Sjá meira