Efasemdir um að Landsvirkjun nái hærra orkuverði Kristján Már Unnarsson skrifar 15. maí 2012 12:27 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Spáð er að erfiðara verði að fylgja eftir stefnu um aukna arðsemi.
Lækkun raforkuverðs til stóriðju í Bandaríkjunum gæti skert möguleika Landsvirkjunar til orkusölu og þar með hægt á iðnaðaruppbyggingu á Íslandi. Þetta segir Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur um orkumál. Ketill rekur í grein á netsíðu sinni, Orkublogginu, hvernig aukið framboð á ódýru gasi í Bandaríkjunum hafi leitt til verðlækkunar á raforku til stóriðju þar í landi. Ketill telur að þessa sjái þegar merki hérlendis, í því til dæmis hve erfiðlega Landsvirkjun gangi að semja um orkusölu til kísilvera. Hann segir í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar blasa við að fyrirtæki, sem er að semja um orkuverð við Landsvirkjun, geti einfaldlega bent á orkuverðið í Bandaríkjunum og reynt að pressa verðið niður. Ketill segir spár misvísandi um það hvort þetta sé varanleg verðlækkun. Bandaríska orkumálaráðuneytið telji til dæmis að raforkuverð þar eigi eftir að haldast þokkalega lágt næstu árin og jafnvel áratugi, vegna mikils framboðs af ódýru gasi, og gangi það eftir verði erfiðara fyrir Landsvirkjun að fá fyrirtæki til Íslands gegn því að borga mun hærra raforkuverð en tíðkast hafi til þessa. "Það er kannski lengra í það að arðsemi í raforkuvinnslu á Íslandi aukist mikið, eins og við höfum verið að vona," segir Ketill Sigurjónsson.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira