Netþjónar í sjálfsafgreiðslu 7. maí 2012 13:57
Nýherji býður nú viðskiptavinum í betaprófanir á tölvuskýi félagsins. Þar geta viðskiptavinir sett upp netþjóna í sjálfsafgreiðslu og aðeins greitt fyrir þær klukkustundir sem þjónarnir eru í notkun. Engin fjárbinding er í búnaði fyrir viðskiptavini þar sem hann er vistaður í tölvuskýi Nýherja, sem annast allar uppfærslur, öryggi og viðhald. Helgi Björgvinsson lausnaráðgjafi hjá Nýherja kynnti svokallað IaaS ský (Infrastructure as a Service) á 20 ára afmælisráðstefnu félagsins á dögunum. Hann segir mikið hagræði fólgið í því fyrir viðskiptavini að geta aukið og dregið úr fjölda og afli netþjóna í sjálfsafgreiðslu. Ekki þurfi að greiða fyrir auðlindir sem ekki er þörf fyrir og aðeins taki fáeinar mínútur að breyta kerfum sem áður hefði getað tekið marga daga.2 mínútur að setja upp netþjón Í kynningu sinni á ráðstefnunni var Helgi 2 mínútur að setja upp netþjón og rúma mínútu að ræsa stýrikerfi í fyrsta sinn í gegnum tölvuskýið. „Á meðan á þessu stóð höfðum við tíma til að bæta örgjörva í annan netþjón. Alls tók það um 4 mínútur frá því við opnuðum umsjónarkerfið þar til þjónninn var kominn í loftið og búið að ræsa Windows." Helgi segir viðbrögð ráðstefnugesta hafi verið sérlega góð. „Það er virkilega skemmtilegt að ná þessum áfanga í þeirri þróunarvinnu sem staðið hefur yfir hjá okkur um nokkurn tíma. Það er svo sannarlega líka gaman að vera hluti þess afbragðshóps sem fær tækifæri til að vinna að svo framsæknum lausnum hjá hinum síunga, tvítuga Nýherja." Helgi segir að ástæða þess að Nýherji hafi ráðist í beta prófanir á skýinu fyrst í stað sé ekki af tæknilegum ástæðum. „Við höfum fullt traust á þeirri tækni sem við byggjum á," segir Helgi. „Ástæðan er fyrst og fremst til þess að slípa afhendingar- og þjónustuferla þar sem við viljum vera vissir um að upplifun viðskiptavina sé ávallt í samræmi við það besta sem þekkist í heiminum. Við viljum tryggja að þegar viðskiptavinur kaupir aðgang að tölvuskýi Nýherja geti hann ávallt treyst því að afhendingartími og gæði sé sá sem við gefum út að hann eigi að vera. Við ætlum okkur að ljúka beta-fasanum síðar á árinu og fara þá í almenna markaðssetningu lausnarinnar."
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira