Lýsing fær á baukinn frá FME Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. nóvember 2012 15:21 Unnur Gunnarsdóttir forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Fjármálaeftirlitið telur að Lýsing hefði átt að svara spurningum sem viðskiptavinur beindi að stofnuninni í stað þess að benda á yfirlýsingu á vefsíðu sinni. Þetta kemur fram í gagnsæistilkynningu vegna athugunar á starfsháttum Lýsingar hf. Í áliti FME segir að ábending hafi borist frá viðskiptavini Lýsingar hf. um að sér hefði verið neitað um svör við tilteknum fyrirspurnum sem lutu meðal annars að endurútreikningi erlends láns sem viðskiptavinurinn hafði tekið hjá félaginu og geymslureikningi sem félagið hafði stofnað vegna hugsanlegrar ofgreiðslu lánsins. Í samræmi við verklagsreglur Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirspurna og ábendinga óskaði Fjármálaeftirlitið eftir sjónarmiðum Lýsingar hf. vegna málsins. Í svörum Lýsingar hf. kom m.a. fram að félagið teldi fréttatilkynningu sem birt hefði verið á heimasíðu félagsins þann 29. maí sl. fela í sér næg svör við þeim fyrirspurnum sem um ræddi og að því hefði ekki verið talin þörf á sérstökum skýringum. Jafnframt hefðu sumar fyrirspurnirnar verið þess eðlis að ekki væru til einhlít svör við þeim. Fjármálaeftirlitið féllst ekki á sjónarmið Lýsingar hf. og taldi að efnisleg svör við fyrirspurnum, að teknu eðlilegu tilliti til trúnaðar og hagsmuna fjármálafyrirtækja af leynd yfir tilteknum þáttum starfseminnar, væri nauðsynlegt skilyrði eðlilegra samskipta milli viðskiptavina og fjármálafyrirtækja og þess trausts sem fjármálafyrirtæki verða að njóta hjá viðskiptavinum og almenningi að öðru leyti. Rétt er að taka fram að í tilkynningu FME kemur fram að á meðan athuguninni stóð, birti Lýsing hf. nýja fréttatilkynningu á heimasíðu sinni sem fól í sér nánari skýringar en finna mátti í fréttatilkynningu félagsins frá 29. maí sl.Tilkynning FME vegna gagnsæisathugunarinnar.
Mest lesið Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Fleiri fréttir Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Sjá meira