Listræn sýning Sigur Rósar Freyr Bjarnason skrifar 6. nóvember 2012 10:18 Jón Þór Birgisson og félagar í Sigur Rós fóru á kostum á mögnuðum tónleikum í Nýju Laugardagshöllinni á sunnudagskvöld. fréttablaðið/valli
Sigur Rós Nýja Laugardagshöllin 4. Nóvember Eins og búast mátti við ríkti mikil eftirvænting eftir fyrstu tónleikum Sigur Rósar hérlendis í fjögur ár. Hljómsveitin hefur verið á tónleikaferð um heiminn til að fylgja plötunni Valtari eftir og ætlaði að tjalda öllu til á heimavelli. Það gerði hún bókstaflega því þegar í Nýju Laugardalshöllina var komið var búið að girða sviðið af með stóru gegnsæju tjaldi. Eftir að hljómsveitin mætti nokkuð seint á svið, tíu mínútur yfir átta, hófust leikar. Í fyrstu þremur lögunum var tjaldið fyrir sviðinu og varpað var á það myndum, bæði af trjám úr tónlistarmyndböndum Sigur Rósar og af hljómsveitarmeðlimunum sjálfum uppi á sviði, enda sáust aðeins skuggar þeirra í gegnum tjaldið. Stundum leið manni eins og maður væri að horfa á risastórt tónlistarmyndband en þetta kom engu að síður mjög vel út og var upphafið að mikilli sjónrænni veislu. Eftir að tjaldið hafði verið fellt niður hékk breiðtjald yfir sviðinu þar sem ýmsum myndum var áfram varpað. Sú lausn, ef svo má segja, heppnaðist afar vel. Sigur Rós spilaði mörg af sínum bestu lögum á tónleikunum en aðeins var pláss fyrir eitt af hinni hlustendavænu Með suð í eyrum við spilum endalaust og tvö af nýju plötunni Valtara. Áhorfendur tóku mest við sér þegar Hoppípolla byrjaði að óma. Allir flottu snjallsímarnir voru drifnir á loft og lýstu þeir upp salinn á meðan þeir tóku upp herlegheitin. Annars er erfitt að nefna eitt lag umfram annað á tónleikunum. Nánast öll voru þau frábær, þar á meðal Glósóli, Hafsól og Varúð. Hljómsveitarmeðlimir voru sem fyrr fámálir. Það eina sem Jónsi sagði fram að uppklappi var til mynda "takk" og það aðeins tvisvar sinnum. Eftir uppklapp spilaði Sigur Rós þrjú lög, þar á meðal nýja lagið Brennisteinn. Þar kvað við nokkuð nýjan tón. Lagið var einhvers konar blanda af elektrói og rokki, virkilega töff, og var það kryddað með æðislegri grænni leysigeislasýningu, en fyrr á tónleikunum hafði blá leysigeislasýning lýst upp salinn. Brennisteinn veit á gott fyrir næstu plötu Sigur Rósar, sem kemur líklega út á næsta ári. Lokalagið var svo síðasta lag svigaplötunnar, Popplagið. Sannarlega frábær endahnykkur á mögnuðum tveggja tíma löngum tónleikum. Þessir langþráðu Sigur Rósar tónleikar stóðu vel undir væntingum. Spilamennskan var framúrskarandi og virtist hljómsveitin ekkert sakna hljómborðsleikarans Kjartans Sveinssonar. Sjónræni þátturinn hafði einnig mikið að segja og gerði frábæra tónleika enn betri; eiginlega að listrænni sýningu. Ekki amalegur endir á annars stórskemmtilegri Airwaves-hátíð. Niðurstaða: Frábærir tónleikar hjá Sigur Rós. Veisla fyrir augu og eyru.
Gagnrýni Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Fleiri fréttir Hvað er það versta sem þú hefur gert? Allir komust lifandi út – nema Beethoven Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Kjánalegar klisjur og kærulausir kappar Misheppnaður mömmuleikur Hugljúft en stutt gaman Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Öskrað á of litlu sviði Lengsti klukkutími ævinnar Sjá meira