Þorsteinn Már: Stjórnvöld og fólk í sjávarútvegi vinni saman 6. nóvember 2012 13:39 Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. „
Ég hef ekki staðið frammi fyrir jafn krefjandi verkefni í rekstri Samherja síðastliðin 25 ár og nú," segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í tilkynningu vegna rekstrarárs í fyrra, sem birt var á vef Samherja 2. nóvember. Samherji, að meðtöldum dótturfélögum, hagnaðist um 8,8 milljarða króna í fyrra, sem er besta rekstrarafkoma í sögu félagsins. Þorsteinn Már segir í tilkynningunni að aldrei hafi verið brýnna að stjórnvöld og þeir sem starfi í sjávarútvegi standi saman. „Efnahagsástandið í Evrópu veldur því að viðskiptavinir okkar hafa ekki jafn greiðan aðgang að fjármögnun og áður auk þess sem neytendur hafa snúið sér að ódýrari afurðum í einhverjum mæli. Við þetta bætist mjög mikil aukning þorskkvóta í Barentshafi og gríðarlegur vöxtur fiskeldis. Þess vegna hafa verð á mörkuðum farið lækkandi og birgðir eru að aukast. Því hefur aldrei verið brýnna en nú fyrir sjávarútveg á Íslandi að stjórnvöld hér heima og þeir sem í sjávarútvegi starfa standi saman og vinni sameiginlega að lausn þeirra verkefna sem framundan eru," segir Þorsteinn Már. Rúmlega 60 prósent af starfsemi Samherja og dótturfélaga er erlendis, en félög Samherja eru með starfsemi í ellefu löndum. Meginþunginn í starfsemi Samherja hér á landi er á Eyjafjarðarsvæðinu, þ.e. á Akureyri og Dalvík, en höfuðstöðvarnar eru á Akureyri. Samtals vinna um 350 starfsmenn í landvinnslu Samherja á Eyjafjarðarsvæðinu.
Mest lesið Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Viðskipti innlent Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Viðskipti innlent Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira