Viðskipti innlent

Eigið fé Hörpu dugar fyrir rekstri fram á mitt ár 2013

Harpa
Harpa
Um mitt næsta ár þrýtur eigið fé Portusar verði ekki breytingar á rekstrarforsendum Hörpu. Eigendur gætu þurft að hækka framlög. Borgin fær hærri tekjur af húsinu en áætlanir gerðu ráð fyrir og borgin samþykkti.

Eigið fé Portusar, eignarhaldsfélags Hörpu, dugar fyrir óbreyttum rekstri fram á mitt næsta ár. Þetta segir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar.

Pétur segir stærstan hluta taprekstursins mega skýra með hærri fasteignagjöldum en gert hafi verið ráð fyrir. Áætlanir, sem fulltrúar borgarinnar samþykktu, gerðu ráð fyrir 180 milljónum, en raunin er sú að árleg fasteignagjöld eru um 380 milljónir króna sem greiðast til annars eigandans, Reykjavíkurborgar.

Pétur segir að áætlanir hefðu staðist að mestu ef fasteignagjöldin hefðu orðið lægri. Hann segir að gert hafi verið ráð fyrir tapi á rekstrinum í fyrstu, á milli 100 og 200 milljónum fyrsta árið og síðan lækkandi næstu þrjú ár.

„Við erum búin að borga þessi fasteignagjöld í heilt ár og höfum ekki leitað til eigenda og þurfum ekki að gera það í ár með fjárframlög eða neitt. Ef þetta heldur áfram svona getum við fjármagnað okkur fram yfir mitt næsta ár, en ekki mikið lengur en það.“

Ríkið og Reykjavíkurborg lánuðu Austurhöfn-TR 730 milljónir króna í nóvember í fyrra, sem átti að greiða upp á tólf mánuðum. Skuldabréfaútboð skilaði fyrirtækinu 19,3 milljörðum króna fyrr á þessu ári.

Aukin fjárþörf hefur legið fyrir að minnsta kosti síðan í apríl 2010. Í svörum Portusar og Austurhafnar við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar er lagt til að hlutafé verði aukið um 580 milljónir króna. Hluti þess kæmi frá Austurhöfn í formi tækjabúnaðar. Framlag eigenda yrði 505 milljónir króna.

- kóp / sjá síðu 8






Fleiri fréttir

Sjá meira


×