Viðskipti innlent

Verðmætasti makríllinn kemur á króka

BBI skrifar
Mynd/Óskar P.
Verðmætasti makríllinn sem veiðist við strendur landsins er veiddur á króka af smábátum. Á vef Landssambands smábátaeigenda segir að gæði makrílsins séu meiri þegar hann kemur á króka en þegar hann er veiddur í troll. Það skilar sér svo í hærra verði.

Enn hafa krókabátar ekki flykkst á makrílveiðar enda eru þær enn á tilraunastigi. Aðeins stunda 12 bátar krókaveiðar. Þróunin á yfirstandandi vertíð miðar þó í rétta átt. Enn er mánuður eftir af vertíðinni og þegar er búið að veiða þriðjungi meira en á allri vertíðinni í fyrra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×