Áfengi 5 prósent dýrara en fyrra - salan dróst saman um 18 prósent 14. ágúst 2012 17:46 Frá Vínbúðinni í Skeifunni
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 3,4% á föstu verðlagi í júlí miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram smávísitölu Rannsóknaseturs verslunarinnar. Sala á áfengi dróst saman um 17,9% í júlí miðað við sama mánuð í fyrra en verð á áfengi var 5 prósent hærra í ár. Þá minnkaði fataverslun um 11,7% en verðið var 3,4% hærra. Velta skóverslunar dróst saman um 11,8% í júlí og var verðið á skóm 5,1% hærra en í fyrra. Velta húsgagnaverslana jókst saman um 12,3% en verðið á húsgögnum var 5,7% hærra en í fyrra. Sala á raftækjum jókst um 5% og hækkaði verðið hækkaði um 0,6% frá júlí í fyrra. „Landsmenn voru heldur sparsamari í neyslu á mat og drykk í júlí síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Að hluta til er skýringin sú að í fyrra voru síðustu innkaupadagar fyrir verslunarmannahelgi í júlí en í ár voru þeir í ágúst. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir þessum dagamun var samt samdráttur að raunvirði um 1,6% í dagvöruverslun og 5,6% í áfengisverslun. Fataverslun á enn í vök að verjast þó verð á fötum hafi aðeins hækkað um 3,4% á einu ári, sem er nokkru minna en almennar verðhækkanir. Síðasta ársfjórðunginn hefur raunsamdráttur orðið í fataverslun sem nemur 6,1% miðað við sama tímabil í fyrra. Skóverslun dróst saman í síðasta mánuði, en þegar borin er saman raunvelta síðasta ársfjórðung við sama tíma í fyrra kemur í ljós að sala á skóm hefur aukist lítillega á þessu tímabili. Sala á húsgögnum og raftækjum eykst smám saman enda líkur á að endurnýjunar sé þörf á mörgum heimilum eftir þann mikla samdrátt sem átti sér stað í kjölfar hrun bankanna. Með auknum fjölda erlendra ferðamanna til landsins eykst mikilvægi þeirra á íslenska verslun. Samkvæmt ferðaþjónustureikningi Hagstofunnar er gert ráð fyrir að um 15% neyslu erlendra ferðamanna hér á landi sé varið til smásöluverslunar. Í síðasta mánuði var velta erlendra greiðslukorta hér á landi 13,1 milljarður króna. Samkvæmt þessu má ætla að ferðamenn hafi varið næstum tveimur milljörðum kr. í verslun hér á landi í síðasta mánuði. Þess má geta að velta innlendra greiðslukorta hér á landi í síðasta mánuði var 61,5 milljarður kr.," segir í tilkynningu.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Sjá meira