Íbúðalánasjóð vantar 12 milljarða króna Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. nóvember 2012 18:30 Sérstök nefnd sem fjallaði um málefni Íbúðalánasjóðs hefur skilar ríkisstjórninni skýrslu með tillögum. Sjóðinn vantar 12 milljarða króna til að uppfylla kröfur um eigið fé.
Íbúðalánasjóð vantar tólf milljarða króna til að uppfylla kröfur um eigið fé. Forstjóri sjóðsins segir að ekki verði komist hjá því að ríkið leggi sjóðnum til fé. Til stendur að kynna úrræði til að bjarga sjóðnum á þriðjudag en opinber nefnd hefur að undanförnu fjallað um málefni sjóðsins. Ríkisstjórn Íslands hefur sérstaklega fjallað um stöðu Íbúðalánasjóðs um helgina. Ljóst er að ríkissjóður þarf að leggja sjóðnum til þess að rétta af laka stöðu hans, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu vantar sjóðinn 12 milljarða króna til að uppfylla kröfur um eigið fé. Opinber nefnd hefur að undanförnu fjallað um málefni sjóðsins og hefur kynnt ríkisstjórninni þær leiðir sem standa til boða í sérstakri skýrslu um stöðu Íbúðalánasjóðs. Í þessari nefnd sátu m.a skrifstofustjóri fjárreiðu- og eignaskrifstofu fjármálaráðuneytisins og aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra. Til stendur að kynna þessar leiðir á þriðjudaginn næstkomandi. Eins og áður segir vanta sjóðinn 12 milljarða króna til að uppfylla kröfur um eigið fé. Ljóst er að þessir peningar þurfa að koma frá ríkissjóði, en þetta verður í annað sinn frá hruni sem ríkið hleypur undir bagga. Í desember 2010 samþykkti Alþingi að veita sjóðnum 33 milljarða króna. Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, baðst undan viðtali en sagði að stjórn sjóðsins myndi á næstunni fara ítarlega yfir skýrslu nefndarinnar. Sigurður sagði að í sínum huga væri alveg klárt að ekki yrði komist hjá því að leggja sjóðnum til fé frá ríkinu. „Númer eitt, tvö og þrjú þarf sjóðurinn að uppfylla eiginfjárkröfuna. Það lykilforsenda, en síðan eru ýmsir hlutir sem sjóðurinn getur unnið í og er að gera núna," sagði Sigurður. Rannsóknarnefnd á vegum Alþingis um málefni Íbúðalánasjóðs lýkur senn störfum en nefndin hefur rannsakað starfsemi sjóðsins frá síðustu aldamótum og til dagsins í dag. Á skýrslan að liggja fyrir um næstu áramót, samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira