FME samþykkir ferli WDI um kaup á hlutafé Össurar hf. 5. júní 2012 10:34
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur samþykkt það ferli sem danska félagið William Demant Invest (WDI) ætlar að nota til að gera öðrum hluthöfum í Össuri hf. valfrjálst tilboð í alla hluti þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt hefur verið á vefsíðu FME. Á vefsíðu FME segir að "Þrátt fyrir gildandi samning á milli Fjármálaeftirlitsins og NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) um að síðarnefndi aðilinn (WDI) staðfesti almennt tilboðsyfirlit, hafa Fjármálaeftirlitið og Kauphöllin gert með sér samkomulag um að í þessu tilviki staðfesti Fjármálaeftirlitið tilboðsyfirlitið." Fyrir tveimur vikum sendi WDI frá sér yfirlýsingu um málið og þar kom fram að tilboð félagsins væri til komið þar sem hlutur WDI í Össuri fer að öllum líkindum brátt yfir 40% markið sem myndar yfirtökuskyldu samkvæmt lögum um hlutabréfaviðskipti. Sem stendur á WDI 39,58% hlut í Össuri. WDI hefur hinsvegar ekki áhuga á að kaupa Össur í heild en vill eiga 40-50% í félaginu í framtíðinni. Á vefsíðu Össurar segir að WDI muni, ef ferlið er samþykkt, setja innan fjögurra daga tilboð sitt fram en það felur í sér að WDI kaupir hluti í Össuri á 202 kr. stykkið eða 8,2 danskar kr. og verður greitt fyrir hlutina með reiðufé. Gengi á hlutum Össurar er hinsvegar 210 kr. á hlut í augnablikinu í Kauphöllinni. Í tilkynningu sem birtist vefsíðu Össurar þann 22. maí s.l. kemur fram að þessi áform WDI muni ekki hafa nein áhrif á starfsemi Össurar hf. eða starfsmenn félagsins. Þá hefur WDI ekki í hyggju að afskrá Össur né breyta samþykktum félagsins í tengslum við tilboðið.
Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Fleiri fréttir Skrifstofa NetApp á Íslandi lögð niður Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Sjá meira