Helmingur félaga í fangi banka til sölu 11. maí 2012 09:00 Helstu stjórnendur Fjármálaeftirlitsins fóru yfir rekstur bankanna, eign þeirra á félögum í óskyldum rekstri og endurreikninga ólögmætra gengisbundinna lána á fundinum í gær. Fréttablaðið/vilhelm
Alls voru 116 félög í óskyldum rekstri í eigu viðskiptabanka í byrjun þessa mánaðar. Þau voru 132 í byrjun nóvember 2011 og hefur því fækkað um 16 síðan þá. Alls hafa bankar átt, að hluta eða í heild, 193 félög í tímabundinni starfsemi frá miðju síðasta ári. Þar af hafa þeir átt 179 þeirra lengur en í tólf mánuði. Á því tímabili hafa bankarnir losað um eignarhald á 77 félögum en 55 ný hafa bæst við. Þetta kom fram á kynningarfundi sem Fjármálaeftirlitið (FME) hélt í gær um stöðu og horfur viðskiptabankanna. Samkvæmt lögum mega fjármálafyrirtæki einungis eiga félög í óskyldum rekstri í 12 mánuði hið mesta án þess að leita eftir undanþágu vegna eignarhaldsins. Af þeim félögum sem voru í eigu banka 1. maí síðastliðinn eru einungis 14 innan upphaflegra tímamarka en frestir hafa verið veittir vegna 102 þeirra. Af þeim félögum sem bankar halda á í dag og eru á undanþágu frá FME eru 57 í söluferli, 32 eru í slitaferli, tíu eru með umsókn í skoðun hjá FME og þrjú eru í endurskipulagningarferli. Í nóvember voru einungis 10,6 prósent þeirra félaga sem bankarnir héldu á í söluferli. Nú er tæpur helmingur þeirra í slíku ferli. Af þeim félögum sem bankarnir hafa losað um hefur 41 verið selt, 23 verið slitið og átta hafa verið sett í þrot. Samkeppniseftirlitið (SE) hefur gagnrýnt yfirráð banka yfir félögum sem lent hafa í vandræðum. Í skýrslu sem það birti í lok mars kom fram að það telji bankana vera í ráðandi stöðu í 27 prósentum af 120 stærstu félögum landsins. Enn fremur gagnrýndi SE að íslensk félög kæmu allt of skuldsett út úr fjárhagslegri endurskipulagningu og að óvíst væri að mörg þeirra gætu staðið undir henni. Á fundinum staðfesti Halldóra Elín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri eftirlits FME, að sum þeirra félaga sem lokið hafi fjárhagslegri endurskipulagningu innan bankanna væru komin aftur í vanskil. Of snemmt væri hins vegar að birta upplýsingar um slíkt. Vanskilahlutfall íslensku bankanna er mjög hátt, eða 13,5 prósent. Það var sett í samhengi við vanskil fimm erlendra banka á fundinum í gær, en vanskilahlutföll þeirra voru á bilinu 0,5 til 5,8 prósent. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Sjá meira