Viðskipti innlent

Myllusetur kvartar yfir 365-miðlum

Magnús Halldórsson skrifar
Viðskiptablaðið.
Viðskiptablaðið.
Myllusetur, útgáfufélag Viðskiptablaðsins, hefur sent kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna meintrar misnotkunar 365-miðla, sem reka m.a. Vísi.is, Fréttablaðið og Stöð 2, á markaðsráðandi stöðu sinni. Frá þessu er greint í yfirlýsingu frá útgefanda og stærsta eiganda Viðskiptablaðsins, Pétri Árna Jónssyni, en hún er birt á vef Viðskiptablaðsins, vb.is.

Í yfirlýsingunni segir m.a.: "Háttsemi fyrirtækisins felst m.a. í einkakaupum, tryggðarafsláttum, skaðlegri undirverðlagningu og samtvinnun ólíkrar þjónustu. Samkvæmt 11. gr. samkeppnislaga er markaðsráðandi fyrirtækjum óheimilt að viðhafa slíka háttsemi. Eru brotin einkum í tengslum við útgáfu á Fréttablaðinu og sölu auglýsinga."

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögmaður Mylluseturs, vildi ekki láta Vísi hafa afrit af kvörtuninni þegar eftir því var leitað.

Sjá má yfirlýsinguna, inn á vb.is, hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×