Viðskipti innlent

Íslandsbanki og Straumur undirbúa skráningu Eimskips á hlutabréfamarkað

Eimskip hefur ráðið Íslandsbanka og Straum fjárfestingabanka til að vinna að undirbúningi að skráningu félagsins á NASDAQ OMX Iceland. Gert er ráð fyrir því að fram fari almennt hlutafjárútboð þar sem fjárfestum og almenningi sig fyrir hlutum í félaginu.

Í fréttatilkynningu frá Eimskipafélagi Íslands hf. kemur fram að markmið fyrirhugaðs útboðs sé að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins. Stefnt er að því að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland á síðasta ársfjórðungi 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×