Viðskipti innlent

Mikil auknin á launakostnaði milli ársfjórðunga

Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst um 11,1% á fjórða ársfjórðungi ársins í fyrra miðað við fyrri ársfjórðung í samgöngum og flutningum, 9,6% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 8,3% í iðnaði og 6,4% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 4% í byggingarstarfsemi, 3,9% í verslun og samgöngum og um 1,4% í iðnaði. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desemberuppbót.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá 4. ársfjórðungi 2010 var á bilinu 5,3% til 8,4%. Mest var hækkunin í samgöngum en minnst í verslun. Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna jókst einnig mest í samgöngum milli ára um 6,2% og minnst var aukningin í verslun 4,3%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×