Slitastjórn greiðir 105 milljarða í forgangskröfur 15. mars 2012 13:38
Slitastjórn Glitnis hf. tilkynnir hér með að greiðslur til forgangskröfuhafa Glitnis fara fram föstudaginn 16. mars 2012. Samkvæmt tilkynningu frá slitastjórn var kröfuhafafundur haldinn 31. janúar 2012, þar kynnti slitastjórn Glitnis tillögu um greiðslur til forgangskröfuhafa, þar sem farið var yfir eftirfarandi þætti: forsendur sem yrðu lagðar til grundvallar við greiðslu til forgangskröfuhafa í íslenskum krónum, evrum, bandaríkjadölum, sterlingspundum og norskum krónum (þ.m.t. hvernig hlutfall hverrar myntar er ákvarðað), Gengið sem notað verður við reikning greiðslna í erlendum gjaldmiðlum úr íslenskum krónum, fyrirkomulag greiðslna vegna forgangskrafna, sem ágreiningur er um, inn á geymslureikninga þar til úrlausn um kröfuna liggur fyrir, og Skilyrðin fyrir greiðslum til kröfuhafa, sem eiga óumdeildar forgangskröfur, þ.m.t. skilyrði um að kröfuhafar skuldbindi sig gagnvart Glitni að endurgreiða mögulegar ofgreiddar fjárhæðir. Samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti ofl. áttu kröfuhafar Glitnis þess kost að mótmæla fyrirhugaðri greiðslutilhögun. Nokkur mótmæli bárust en hafa nú verið leyst eða dregin til baka. Því eru skilyrði þess að greiðsla geti farið fram uppfyllt. Slitastjórnin áformar að inna af hendi greiðslur beint til forgangskröfuhafa og einnig inn á sérstaka geymslureikninga föstudaginn 16. mars 2012. Síðan er það ætlun slitastjórnarinnar að greiða mánaðarlega af geymslureikningunum til forgangskröfuhafa jafnóðum og endanleg úrlausn um kröfuna liggur fyrir og kröfuhafar uppfylla skilyrði til þess að fá úthlutað fjármunum af geymslureikningunum. Hinn 13. mars samþykkti Alþingi lög nr. 17/2012. Með þeim voru gerðar breytingar á gjaldeyrishöftum á Íslandi og sérstök ákvæði sett um greiðslur í íslenskum krónum til erlendra aðila. Samkvæmt hinum nýju lögum þarf samþykki Seðlabanka Íslands fyrir úthlutun greiðslna í íslenskum krónum til forgangskröfuhafa. Af þeim sökum verður allur sá hluti úthlutunarinnar sem er í íslenskum krónum greiddur inn á geymslureikning í íslenskum krónum meðan beðið er heimildar Seðlabanka Íslands.Kröfur vegna heildsöluinnlán Fimmtíu og þrír opinberir aðilar í Bretlandi, þ.m.t. sveitarstjórnir og háskólar, áttu heildsöluinnlán hjá Glitni í októbermánuði 2008. Þessir innlánseigendur héldu því fram að þeir ættu rétt á forgangi vegna þessara innlána skv. 112. gr. íslenskra gjaldþrotalaga. Með dómi Hæstaréttar uppkveðnum 28. nóvember 2011 var komist að þeirri niðurstöðu að heildsöluinnlán nytu forgangs.Gjaldmiðlar greiðslna Allar kröfur á hendur Glitni voru umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við gengi krónunnar hinn 22. apríl 2009. Greiðslur til forgangskröfuhafa verða í myntkörfu sem styðst við sama gengi. Greitt verður í íslenskum krónum, evrum, bandaríkjadölum, sterlingspundum og norskum krónum. Heildarfjárhæð forgangskrafna, sem greiddar verða út með þessari úthlutun, er kr. 105,6 milljarðar.
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira