Vill rannsaka verklag Steingríms vegna Spkef BBI skrifar 9. júní 2012 14:17 Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vill að aðkoma Steingríms J. Sigfússonar að Spkef verði rannsökuð. Nýlega kom í ljós að það kostar ríkið 19 milljarða að tryggja einnistæður í sparisjóðnum. „Það sem þarf að rannsaka er hvernig það megi vera að hægt sé að reka svona sparisjóð án þess að uppfylla lögbundnar kröfur," segir Guðlaugur. „Af hverju lét FME það gerast." Guðlaugur bendir á að Spkef hafi ekki uppfyllt lögbundnar eignarfjárkröfur. Einnig hefur fjármálaráðherra sjálfur farið með eignarhlut ríkisins í sjóðnum, sem er andstætt lögum um að Bankasýsla ríkisins eigi að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Guðlaugur sendi stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis bréf í október árið 2011 vegna málsins og benti á að það væri lögbundið hlutverk nefndarinnar að rannsaka mál af þessum toga. Á þeim tíma skelltu menn skollaeyrum við tilmælum Guðlaugs og málið var ekki rannsakað. Nú hefur komið á daginn að það kostar ríkið 19 milljarða að tryggja innistæður í sparisjóðnum. Það er meira en rekstrarkostnaður allra háskóla í landinu. „Strax og mönnum varð þetta ljóst á vormánuðum 2009 átti náttúrlega að setja skilanefnd yfir. Þá værum við í miklu betri málum núna," segir Guðlaugur „En Steingrímur tók ákvörðun um að fara aðra leið og það kostaði okkur þessa fjármuni."
Tengdar fréttir Kostaði 19 milljarða að rikistryggja innistæður í SpKef Það kostaði íslenska ríkið rúma 19 milljarða að ríkistryggja innistæður í SpKef, samkvæmt niðurstöðum úrskruðarnefndar sem sett var á laggirnar að skera úr um endurgjald ríkisins til Landsbankans vegna yfirtöku á sparisjóðnum. Úrskurðurinn var kveðinn upp í gær. Þar segir að með úrskurðinum sé endanlega leyst úr ágreiningi milli aðila um greiðslu til Landsbankans hf. vegna yfirtöku á SpKef sparisjóði. 8. júní 2012 11:37 Skattgreiðendur fá 19 milljarða reikning í hausinn "Yfirtaka ríkisins á SpKef er orðið eitt mesta klúður sem sést hefur í tíð ríkisstjórnarinnar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, en í ljós hefur komið að það kostar ríkið 19 milljarða að tryggja innistæður í sparisjóðnum. Bjarni bendir á að Gylfi Magnússon, þáverandi ráðherra bankamála, hafi fyrst sagt að yfirtaka ríkisins myndi einungis kosta 800 milljónir sem myndu endurheimtast. Árni Páll Árnason, eftirmaður hans, hafi sagt að leggja þyrfti 11,2 milljarða vegna ofmats á eignum. 8. júní 2012 13:05 Mest lesið Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira
Kostaði 19 milljarða að rikistryggja innistæður í SpKef Það kostaði íslenska ríkið rúma 19 milljarða að ríkistryggja innistæður í SpKef, samkvæmt niðurstöðum úrskruðarnefndar sem sett var á laggirnar að skera úr um endurgjald ríkisins til Landsbankans vegna yfirtöku á sparisjóðnum. Úrskurðurinn var kveðinn upp í gær. Þar segir að með úrskurðinum sé endanlega leyst úr ágreiningi milli aðila um greiðslu til Landsbankans hf. vegna yfirtöku á SpKef sparisjóði. 8. júní 2012 11:37
Skattgreiðendur fá 19 milljarða reikning í hausinn "Yfirtaka ríkisins á SpKef er orðið eitt mesta klúður sem sést hefur í tíð ríkisstjórnarinnar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, en í ljós hefur komið að það kostar ríkið 19 milljarða að tryggja innistæður í sparisjóðnum. Bjarni bendir á að Gylfi Magnússon, þáverandi ráðherra bankamála, hafi fyrst sagt að yfirtaka ríkisins myndi einungis kosta 800 milljónir sem myndu endurheimtast. Árni Páll Árnason, eftirmaður hans, hafi sagt að leggja þyrfti 11,2 milljarða vegna ofmats á eignum. 8. júní 2012 13:05