"Eins og Steingrímur haldi að hann sé hafinn yfir lög“ 9. júní 2012 18:59
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að fjármálaráðuneytið, undir stjórn Steingríms J. Sigfússonar, hafi leppað hlut kröfuhafa SpKef. Guðlaugur gagnrýnir að aðkoma Steingríms að bankanum hafi ekki verið formlega rannsökuð. Yfirtaka ríkisins á Sparisjóðnum í Keflavík kostar ríkissjóð 19 milljarða króna, eða 8 milljörðum meira en gefið var út þegar sparisjóðurinn var sameinaður Landsbankanum. „Þegar vextirnir eru teknir með nemur heildarkostnaðurinn ársframlagi ríkisins til Landspítalans sem er alls um 25 milljarðar," segir Guðlaugur Guðlaugur segir að ekki hafi verið farið að lögum um Bankasýslu þar sem segir að allir hlutir ríkisins í bankastofnunum eigi að vera hjá Bankasýslunni. Þetta hafi ekki verið gert í tilfelli Byrs og SpKef. „Þá ákvað Steingrímur að halda utan um þá hluti," segir Guðlaugur og telur ljóst að bæði Byr og SpKef hafi verið í fullri samkeppni við aðra banka án þess að uppfylla skilyrði um eiginfjárfhlutföll. „Og í þriðja lagi er það ljóst að fjármálaráðuneytið leppaði fyrir kröfuhafa sem er mjög sérkennilegt í ljósi þess að kröfuhafar mega ekki eiga banka á íslandi," segir hann. Guðlaugur sendi stjórnskipunar- og eftirlitnsnefnd erindi í október á síðasta ári þar sem hann rekur athugsemdir sínar við vinnulag Steingríms og krefst rannsóknar. Hann bendir ennfremur á að nefndin skuli hafa frumkvæði að því að kanna ákvarðanir einstakra ráðherra eða verklag þeirra. Málið er enn í nefndinni. „Það er bara ljóst að þeir hafa ekki áhuga á að rannsaka sitt eigið fólk, það er ekkert flóknara en það," segir Guðlaugur og telur Steingrím í erfiðri stöðu. „Það er eins og hann telji að hann sé hafinn yfir lög og reglur og geti gert bara það sem honum dettur i hug."
Mest lesið Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira