Iceland Express neitar ásökunum Wow Air 5. júlí 2012 05:00 Skarphéðinn Berg Steinarsson
Iceland Express harðneitar því að hafa stundað viðskiptanjósnir með hlerun á svokallaðri Tetra-rás sem Wow Air hefur notað á Keflavíkurflugvelli. Bendir fyrirtækið á að umræddri rás hafi verið úthlutað til Iceland Express af rekstraraðila Tetra-talstöðvakerfisins. Greint var frá því í fjölmiðlum í gær að flugfélagið Wow Air og flugþjónustan Keflavik Flight Services (KFS) hefðu kært meintar viðskiptanjósnir starfsmanna Iceland Express, þar á meðal Pálma Haraldssonar, aðaleiganda og stjórnarformanns félagsins. Er þeim gefið að sök að hafa hlerað Tetra-rás KFS, þjónustuaðila Wow Air á Keflavíkurflugvelli, í þeim tilgangi að afla upplýsinga um farþegatölur og fleira sem snýr að starfsemi Wow Air. Fram kom í máli Skarphéðins Bergs Steinarssonar, forstjóra Iceland Express, á blaðamannafundi vegna málsins í gær að KFS þjónaði Iceland Express fram í nóvember á síðasta ári og fékk meðan á samstarfinu stóð aðgang að Tetra-rásum sem eru á leyfi Iceland Express hjá Neyðarlínunni sem annast rekstur Tetra-talstöðvakerfisins. Nú hafi komið í ljós að KFS hafi ekki komið sér upp eigin samskiptarásum í Tetra-kerfinu eftir að samstarfinu lauk heldur notað áfram samskiptarásir Iceland Express. Í tilkynningu sem Iceland Express kynnti á blaðamannafundinum segir að það hljómi því eins og lygasaga að KFS og Wow Air hafi kært Iceland Express fyrir að hlera samskipti á rás sem Iceland Express hefur verið úthlutað. Þá hefur Iceland Express nú látið loka fyrir aðgang starfsmanna KFS að Tetra-rásum Iceland Express hjá Neyðarlínunni. Loks kom fram á fundinum að Iceland Express hefur vissulega fylgst með farþegafjölda hjá Wow Air en það hafi verið gert með talningum inn og út úr flugvélum fyrirtækisins.- mþl
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira