Viðskipti innlent

Eignir lífeyrissjóða komnar í 2.241 milljarð

Hrein eign lífeyrissjóða nam 2.241 milljarði kr. í lok maí s.l.. Hrein eign hafði þar með hækkað um tæpa 4 milljarða kr. frá apríl eða um 0,2%. Þetta kemur fram í hagstölum Seðlabankans.

Innlend verðbréfaeign lífeyrissjóða hækkaði um 17,7 milljarða kr. og nam 1.633 milljörðum króna. Þar af hækkuðu skuldabréf útgefin Ríksissjóði Íslands um 13,4 milljarða kr. milli mánaða og íbúðabréf um 4 milljarða kr.

Erlend verðbréfaeign lækkaði hins vegar um 16,2 milljarða kr. frá apríl og nam 499 milljörðum kr. í lok maí.

Af öðrum breytingum má nefna að skuld vegna afleiðusamninga lækkaði um 7,7 milljarða kr. í mánuðinum og innlán lífeyrissjóða lækkuðu um tæpa 2 milljarða kr. Þá lækkuðu aðrar eignir lífeyrissjóða um 3,3 milljarða kr. í maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×