Hópur fjárfesta undir forystu lífeyrissjóða að eignast TM Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. júlí 2012 18:30
Hópur fjárfesta sem samanstendur meðal annars af Lífeyrissjóði verzlunarmanna og Almenna lífeyrisjsóðnum er langt kominn með að ganga frá kaupum á Tryggingamiðstöðinni af Stoðum, áður FL Group. Á annan tug milljarða króna gætu fengist fyrir félagið, sem er eitt stærsta tryggingafyrirtæki landsins. Stoðir, áður FL Group, halda á 99,9 prósentum hlutafjár í Tryggingamiðstöðinni. Fyrirtækið hefur verið í söluferli sem staðið hefur yfir frá 29. mars og var óskuldbindandi tilboðum var skilað inn 4. maí. Í fyrstu voru 5 fjárfestahópar sem þóttu frambærilegastir að mati Landsbankans sem er ráðgjafi Stoða við söluna. Þrír aðilar skiluðu inn bindandi tilboðum í síðasta mánuði og að lokum voru teknar upp viðræður við einn hóp fjárfesta sem fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur farið fyrir. Á bak við þennan hóp standa meðal annars Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Almenni lífeyrissjóðurinn og mynda þeir eins konar hryggjarstykki í hópnum, samkvæmt heimildum fréttastofu. Í hópnum eru einnig aðrir minni lífeyrissjóðir, aðilar í eignastýringu hjá VÍB eignastýringu Íslandsbanka og sjóðir á vegum Íslandssjóða. TM er verðmætasta eign Stoða, en stærstu hluthafar Stoða eru skilanefnd Glitnis, Landsbankinn og Arion banki. Ljóst er að á annan tug milljarða króna gætu fengist við söluna á TM, en bókfært virði eiginfjár fyrirtækisins var 12,2 milljarðar króna um síðustu áramót. Fyrirtækið skilaði 3,4 milljarða króna hagnaði í fyrra. Júlíus Þorfinnsson, framkvæmdastjóri Stoða, sagði í samtali við fréttastofu að viðræður vegna sölunnar á TM væru langt komnar en vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Sjá meira