Meirihluti íslenskra fyrirtækja rekinn með tapi á síðasta ári 18. janúar 2012 13:30 Á hverju ári frá 1998 hefur um helmingur félaga á Íslandi verið í taprekstri. Mynd/Pjetur
Á hverju ári er um helmingur fyrirtækja hér á landi rekinn með tapi. Þetta kemur fram í tölum frá ríkisskattstjóra, sem sýna rekstur fyrirtækja frá árinu 1998. Það ár voru 5.038 fyrirtæki rekin með hagnaði en 4.391 með tapi. Stærra hlutfall fyrirtækja er nú rekið með tapi; árið 2011 voru þau 12.693 en þau sem rekin voru með hagnaði voru 11.762. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti á tímabilinu sem fleiri fyrirtæki eru í taprekstri en þau sem skila hagnaði. Árið 2001 voru 6.043 fyrirtæki rekin með hagnaði en 6.792 með tapi og árið 2002 voru fyrirtæki í taprekstri einnig fleiri en þau sem skiluðu hagnaði. Árið 2008 voru 13.475 fyrirtæki á Íslandi rekin með hagnaði, en 11.148 með tapi. Síðan þá hafa fyrirtæki í taprekstri verið umtalsvert fleiri en þau sem skiluðu hagnaði. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir athyglisvert að hlutfallið sé tiltölulega svipað á árabilinu. „Það munar ekki miklu. Hlutur þeirra sem tapa eftir hrunið eykst aðeins, en ekki í það miklum mæli. Þetta sýnir líka að það er fullt af fyrirtækjum í ágætis rekstri." Ekki er tekið tillit til hve mikill tapreksturinn er eða hagnaðurinn í þessum útreikningum. Skili félag einni krónu eða meira í tap fer það í viðkomandi flokk og hið sama gildir um hagnaðinn. Tekjuskattskyldum félögum hefur fjölgað gríðarlega mikið á síðustu tveimur áratugum. Árið 1993 voru þau 9.568 en árið 2011 voru þau 36.837. Munar þar mestu um fjölda eignarhaldsfélaga. Þau voru fyrst skráð árið 1996 og voru þá 1.367. Í fyrra voru þau 32.662.Félög flokkuð eftir rekstrarafkomu. Smellið á myndina til að stækka hana.Fjöldi félaga sem eru skráð er ekki í neinum rekstri og skilar því engum hreyfingum, hvorki tapi né hagnaði. Þeim hefur þó fækkað undanfarið, voru 2002 árið 2011 en flest árið 2007, þegar þau voru 4.087. „Þetta segir okkur að fyrirtæki kúra, þau eru tekin úr rekstri eða eru ekki í rekstri en skila samt upplýsingum. Hugsanlega bíða þau með fjárfestingar," segir Skúli Eggert. Í mörgum tilvikum sé um að ræða eignarhaldsfélög. -kóp
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira