Minnsta atvinnuþátttaka frá upphafi mælinga Hagstofunnar 18. janúar 2012 09:06
Á fjórða ársfjórðungi í fyrra voru 175.700 á vinnumarkaði sem jafngildir 78,4% atvinnuþátttöku sem er lægsta hlutfall sem Hagstofan hefur mælt frá upphafi vinnumarkaðsrannsókna árið 1991. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að frá fjórða ársfjórðungi 2008 hefur vinnuaflið minnkað um 6.700 manns, en það taldi þá 182.400 manns. Frá fjórða ársfjórðungi 2010 hefur fólki á vinnumarkaði fækkað um 3.100. Atvinnuþátttaka karla á 4. ársfjórðungi 2011 var 82,7% en kvenna 74%. Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Atvinnuþátttaka er hlutfall starfandi og atvinnulausra (vinnuafl) af mannfjölda. Á fjórða ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 10.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 6,4% hjá körlum og 5,6% hjá konum. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2011 var 165.100 manns eða 73,7% af mannfjölda. Hlutfall starfandi karla var 77,4% og starfandi kvenna 69,8%. Hvoru tveggja, atvinnulausum og starfandi, fækkaði frá fjórða ársfjórðungi 2010 til fjórða ársfjórðungs 2011. Atvinnulausum fækkaði um 2.600 og starfandi um 500. Starfandi körlum fjölgaði um 1.400 en á sama tíma fækkaði starfandi konum um 1.900. Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2011 voru að jafnaði 2.900 manns búnir að vera atvinnulausir í 1–2 mánuði eða 1,6% vinnuaflsins. Er það sama hlutfall og svipaður fjöldi og á fjórða ársfjórðungi 2010. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fjórða ársfjórðungi 2011 höfðu um 2.600 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 1,5% alls vinnuaflsins. Á fjórða ársfjórðungi 2010 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 3.200 manns eða 1,8% vinnuaflsins.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent