Hjóla í aðalvitni saksóknara 9. október 2012 00:00
Í greinargerð Hreiðars Más eru tveir fyrrverandi starfsmenn Kaupþings nafngreindir sem lykilmennirnir í Brooks-fléttunni. Þetta eru þeir Eggert Hilmarsson, sem var lögfræðingur hjá Kaupþingi í Lúxemborg, og Halldór Bjarkar Lúðvígsson, sem var viðskiptastjóri á lánasviði Kaupþings. Þar segir að þeim hafi verið ljóst vegna starfa sinna, eða mátt vera ljóst, að ráðstöfunin bryti gegn hagsmunum Brooks og ekki síður Kaupþings. Halldór Bjarkar er raunar sá fyrrverandi starfsmaður Kaupþings sem einna helst hefur borið um saknæma háttsæmi yfirstjórnenda bankans í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara. Í greinargerðinni er athygli vakin á því að Halldór Bjarkar hafi upphaflega verið yfirheyrður sem sakborningur við rannsókn sérstaks saksóknara. Þar segir að réttarstöðunni hafi síðan verið breytt og í kjölfarið hafi framburður hans tekið stakkaskiptum. Hann hafi þá tekið að gagnrýna framburð Hreiðars og leitast við að fría sjálfan sig ábyrgð. Hann sé tvísaga og fari rangt með ýmislegt. Í greinargerðinni er skorað á ákæruvaldið að upplýsa hvort gert hafi verið samkomulag við Halldór Bjarkar – og mögulega aðra – um að fallið yrði frá saksókn á hendur honum gegn því að hann veitti upplýsingar um þátt annarra eins og heimild er fyrir í lögum. Sama áskorun er sett fram í greinargerð Magnúsar Guðmundssonar.
Mest lesið EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira