Hreiðar Már: Braut engin lög - greinargerð í heild sinni Magnús Halldórsson skrifar 9. október 2012 13:06 Hreiðar Már Sigurðsson sést hér í Þjóðmenningarhúsinu, skömmu áður en hann settist í vitnastúku í Landsdómsmálinu.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, hafnar því alfarið að hafa brotið lög í hinu svokallaða Al-Thani máli, og rökstyður það í ítarlegri greinargerð sem lögð hefur verið fram í málinu. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun furðar hann sig á því í greinargerðinni að sérstakur saksóknari hafi ekki ákært tiltekna undirmenn hans fyrir löglaust uppgjör á þrettán milljarða sjálfsábyrgð sjeiks Al Thani. Slitastjórn Kaupþings telur ábyrgðina ógreidda og hefur stefnt sjeiknum til að greiða hana. Hreiðar Már telur undirmenn sína hafa framið refsivert lögbrot 8. október 2008, sama dag og Kaupþing féll. Þá var sjeik Mohammed bin Khalifa Al Thani leyft að gera upp 12,8 milljarða króna sjálfskuldarábyrgð vegna kaupa sinna í bankanum með því að skipta 50 milljón dollurum í krónur á langtum hærra gengi en öðrum bauðst. Dollarana hafði hann fengið að láni frá Kaupþingi. Ákæran í málinu byggir á því að ákærðu, sem eru auk Hreiðars Más þeir Ólafur Ólafsson, fyrrverandi stór hluthafi í bankanum fyrir hrun, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, hafi beitt blekkingum og staðið að markaðsmisnotkun, í tengslum við kaup Sjeiks Mohammed Al-Thani frá Katar á fimm prósenta hlut í Kaupþingi, í september 2008. Greinargerð Hreiðars Más er í 216 liðum á 44 síðum, og er hún birt hér á Vísi í heild sinni. Þar er fjallað ítarlega um málið út frá sjónarhóli Hreiðars Más.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira