Metfjöldi ferðamanna í september 9. október 2012 11:08
Um 64.700 erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í september sl. og er hér um að ræða langstærsta septembermánuð frá upphafi í fjölda þeirra. Í september í fyrra var fjöldi þeirra 51.600 og jafngildir þetta aukningu upp á heil 25,4% milli ára, sem er heldur meiri aukning en verið hefur á milli ára í mánuði hverjum það sem af er ári. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka en Ferðamálastofa birti fyrir helgina tölur sem ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Brottfarir erlendra ferðamanna eru nú komnar upp í 537.000 á fyrstu níu mánuðum ársins, en á sama tímabili í fyrra var fjöldi þeirra 458.100. Jafngildir þetta aukningu upp á 17,2% milli ára. „Í raun eru erlendir ferðamenn orðnir álíka margir nú á fyrstu níu mánuðum ársins og þeir voru allt árið í fyrra, en þá voru þeir 540.100. Líklegt er að brottfarir erlendra ferðamanna um Leifsstöð verði a.m.k. 620 þúsund á þessu ári, en sú tala fæst einfaldlega með því bæta við þeim 82.800 ferðamönnum sem fóru frá landinu um Leifsstöð á síðasta ársfjórðungi í fyrra," segir í Morgunkorninu. „Ef aukningin á síðasta fjórðungi í ár frá sama tíma í fyrra verður hins vegar í takti við það sem hún hefur að jafnaði verið á þessu ári þá fer fjöldinn upp í 634 þúsund." Hvað ferðir Íslendinga varðar kemur fram að alls héldu rúmlega 32.300 Íslendingar utan í september sl. samanborið við um 30.800 í fyrra. Jafngildir þetta aukningu upp á 4,9% á milli ára, sem er heldur minni aukning en hefur að jafnaði verið á árinu. Sé tekið mið af fyrstu níu mánuðum ársins þá eru brottfarir Íslendinga um Leifsstöð um 275.200 talsins samanborið við 260.200 á sama tímabili í fyrra, og hefur þeim því fjölgað um 5,8% á milli ára. Sé árið í ár borið saman við árið 2009, þegar áhrifin af hruninu voru hvað mest, hefur utanlandsferðum landans fjölgað um heil 41,8%, en það ár héldu einungis 194.100 Íslendingar erlendis á fyrstu níu mánuðum ársins. Eðlilega er hluti af skýringunni að fjárhagsleg staða heimila er almennt betri nú en þá og óvissan minni.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Sjá meira