Forseti Alþingis fundar með rannsóknarnefnd um ÍLS á morgun Magnús Halldórsson skrifar 28. nóvember 2012 10:56 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, mun funda með rannsóknarnefnd Alþingis um málefni Íbúðalánasjóðs á morgun klukkan 15:00 og fá þá upplýsingar um hvenær vinnu nefndarinnar lýkur og skýrsla hennar verður birt almenningi. Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurður Hallur Stefánsson, fyrrverandi héraðsdómari. Með honum í nefndinni eru Kirstín Flygenring hagfræðingur og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri.Er nefndinni ætlað að rannsaka starfsemi sjóðsins frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum hans, sem hrundið var í framkvæmd á árinu 2004, og til ársloka 2010. Enn fremur á nefndin að meta áhrifin af þessum breytingum, stefnu sjóðsins og einstökum ákvörðunum á þessum tíma á fjárhag sjóðsins og fasteignamarkaðinn í heild sinni. Þá er nefndinni ætlað að meta áhrif starfsemi Íbúðalánasjóðs á stjórn efnahagsmála og loks að leggja mat á hversu vel sjóðnum hefur tekist að sinna lögbundnu hlutverki sínu á tímabilinu, líkt og nefnt er í þingsályktun Alþingis frá 17. desember 2010. Ríkisstjórnin ákvað í gær að leggja Íbúðalánasjóði til allt að 13 milljarða króna, vegna veikrar eiginfjárstöðu sjóðsins. Árið 2010 ákvað ríkisstjórnin að leggja 33 milljarða til sjóðsins, til þess að styrkja stöðu hans, og því nemur samanlagt framlag til sjóðsins úr ríkissjóði 46 milljörðum króna eftir hrunið. Ekki er útilokað að það verði mun hærra, þegar upp er staðið, en samkvæmt greiningu sem IFS vann fyrir stjórnvöld er fjárþörf sjóðsins næstu þrjú ár 22,5 milljarðar króna. Þá glímir sjóðurinn einnig við önnur vandamál, eins og það að lítil sem engin eftirspurn er eftir verðtryggðum lánum sjóðsins um þessar mundir.
Mest lesið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Fleiri fréttir Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Sjá meira