Guðmundur tapaði 10 milljónum þegar Glitnir féll 28. nóvember 2012 17:07 Glitnir
Íslenska ríkið, Fjármálaeftirlitið og Kauphöllin voru í dag sýknuð af kröfu Guðmundar Matthíassonar sem sagðist hafa verið rændur þegar hann keypti hlutbréf í Glitni, haustið 2008. Guðmundar greiddi tæpar tíu milljónir fyrir bréfin. Þann 29. september var tilkynnt að íslenska ríkið myndi leggja Glitni til 600 milljónir evra og um leið taka yfir 75 prósenta hlut í bankanum. Viðskipti með bréf Glitnis í Kauphöllinni voru heimiluð á ný 30. september og þennan sama dag keypti Guðmundur bréf í bankanum. Viðskipti með hlutbréf í Glitni stóðu yfir allt þangað til bankinn féll nokkrum dögum síðar og um leið urðu þau hlutabréf sem einstaklingar höfðu keypt verðlaus. Guðmundur fór fyrir um 70 manna hópi sem höfðaði skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu, FME og Kauphöllinni.Kauphöll Íslands.Í skýrslu sinni fyrir dómi sagði Guðmundur að ráðgjafi í bankanum hefði ráðlagt sér að kaupa þessi hlutbréf. Hann hafi hinsvegar ekki sagt sér frá neinum fyrirvörum um aðkomu ríkisins, ekki nefnt neina óvissu. Þá sagðist Guðmundur ekki hafa séð tilkynningu Kauphallarinnar þar sem sagt var frá óvissu um bankann og að bréfin væru á athugunarlista. Þess í stað kynnti Guðmundur sér upplýsingar sem bárust frá ríkisstjórninni og þáverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde, sem sagði í útvarpsviðtali, þann 30. september, að ekki væri ástæða til að ætla annað en að vel myndi ganga hjá Glitni í framtíðinni. Fram að þessu hafði Guðmundur ekki stundað hlutabréfaviðskipti, aðeins keypt í verðbréfasjóðum til að njóta skattaafsláttar. Hann kvaðst hafa notað sparifé sitt og konu sinnar við kaupin.Fjármálaeftirlitið.En hlutabréfin í Glitni urðu verðlaus þegar ríkisstjórnin ákvað að hætta við hlutafjáraukninguna. Guðmundur sagðist hafa keypt bréfin í þeirri trú að ríkið stæði við yfirlýsingar sínar og bréfin myndu þess vegna halda verðgildi sínu. Í dómi héraðsdóms segir að fullyrðing Guðmundar um að Fjármálaeftirlitið hafi vanrækt skyldur sínar hafi ekki verið rökstudd. Þá hélt Guðmundur því fram að íslenska ríkið hefði ekki staðið við loforð um hlutafjárframlag. „Þessi tillaga sem stefnandi vill kalla loforð fól í sér að ríkið keypti ný hlutbréf í Glitni fyrir tiltekna fjárhæð og að þessi hlutabréf teldust vera 75% alls hlutafjár í félaginu," segir í dómi Héraðsóms Reykjavíkur. „Þetta var háð samþykki hluthafafundar Glitnis og mátti öllum sem lásu tilkynningu ríkisstjórnarinnar vera það ljóst. Það samþykki var aldrei veitt. Því kom ekki til þess að ríkissjóður yrði skuldbundinn til greiðslu framlagsins. Þá mátti öllum vera ljóst að hlutabréf í bankanum voru ekki tekin eignarnámi, hann þjóðnýttur, eins og ýjað er að í stefnu." Krafa Guðmundar fólst í því að sér yrði bætt tjónið og að íslenska ríkið bæri ábyrgð á saknæmri hegðun og mistökum Fjármálaeftirlitsins.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira