Vöruskiptin hagstæð um 104,5 milljarða í fyrra 31. janúar 2012 09:03
Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2011 fluttar út vörur fyrir 626,4 milljarða króna en inn fyrir 521,9 milljarð króna. Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 104,5 milljörðum en árið áður voru þau hagstæð um 119,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 15,4 milljörðum króna óhagstæðari en árið áður. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir 60,4 milljarða króna og inn fyrir 53,4 milljarða króna. Vöruskiptin í desember voru því hagstæð um 6,9 milljarða króna. Í desember 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 14,6 milljarða króna á sama gengi. Í bráðabirgðatölum fyrir árið hefur verið leiðrétt fyrir verslun með skip og flugvélar á árinu 2011. Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2011 var heildarverðmæti vöruútflutnings 11,9% meiri en árið áður á föstu gengi. Iðnaðarvörur voru 53,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,2% meira á árinu 2011 en árið áður. Ál og afurðir áls vó þyngst í útflutningi iðnaðarvara auk þess að aukast mest, í krónum talið, frá árinu 2010 (13,9 milljarðar). Sjávarafurðir voru 40,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14,4% meira en árið 2010. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða voru fryst fiskflök en útflutningur sjávarafurða, í krónum talið, jókst mest á frystum heilum fiski (16,7 milljarðar). Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2011 18,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings voru hrá- og rekstrarvara með 31,7% hlutdeild og fjárfestingarvara með 21,9% hlutdeild. Af einstökum liðum varð mest aukning, í krónum talið, í hrá- og rekstrarvöru 14,0% (20,3 milljarðar) og eldsneyti og smurolíu 32,4% (18,7 milljarðar).
Mest lesið Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Viðskipti innlent SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Viðskipti innlent Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Viðskipti innlent Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Viðskipti innlent Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Viðskipti innlent Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Viðskipti innlent Húsgagnahöllin sektuð fyrir ósanngjarnar auglýsingar Neytendur Starbucks frestar opnun fram í lok sumars Viðskipti innlent Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni Atvinnulíf SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða „Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Vilja taka yfir Play Boða komu HBO Max til landsins á ný Pála ráðin kynningarfulltrúi BHM Bjarki og Axel Valdemar nýir forstöðumenn hjá atNorth Umsóknir í HA aldrei verið fleiri Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Sjá meira