Utanríkisráðherra setur saman málflutningsteymi í Icesave-málinu 31. janúar 2012 13:11 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur komið á fót málflutningsteymi til að starfa með Tim Ward QC að undirbúningi varnar í Icesave-málinu. Teymið er skipað sérfræðingum sem unnið hafa að málinu frá upphafi, hafa sérþekkingu á Evrópurétti og störfum EFTA-dómstólsins og „lögmönnum sem hafa mikla reynslu af hagsmunagæslu fyrir ríkið eða beitt sér opinberlega gegn þeim samningum sem gerðir voru um lyktir málsins. Auk þess hefur verið leitað til virts fræðimanns í Evrópurétti um að veita aðalmálflytjanda og málflutningsteyminu sérfræðilega aðstoð eftir því sem á þarf að halda." Þetta kemur framí tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Í teyminu eiga sæti: Kristján Andri Stefánsson sendiherra, utanríkisráðuneytinu Þóra M. Hjaltested skrifstofustjóri, efnahags- og viðskiptaráðuneytinu Jóhannes Karl Sveinsson hrl. Einar Karl Hallvarðsson hrl., ríkislögmaður Kristín Haraldsdóttir forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík, fv. aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn Reimar Pétursson hrl. Tengiliður hópsins við forsætisráðuneytið er Páll Þórhallsson skrifstofustjóri og við fjármálaráðuneytið Hafdís Ólafsdóttir skrifstofustjóri, að því er segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. „Nauðsynlegt er að málflutningsteymið hafi aðgang að sérfræðingum á ýmsum sviðum og eftir því sem þörf krefur," segir í tilkynningu utanríkisráðherra. Þá verða eftirfarandi til aðstoðar og ráðgjafar ef þarf: Dr. Miguel Poiares Maduro, prófessor við Flórens-háskóla, gestaprófessor við Yale-háskóla, fv. aðallögsögumaður við Evrópudómstólinn (advocate-general) Stefán Már Stefánsson prófessor emeritus, fv. varadómari við EFTA-dómstólinn Dóra Guðmundsdóttir fv. aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn og fv. varadómari við EFTA-dómstólinn Jafnframt hefur verið leitað til Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um að leggja til ýmsa útreikninga og tölfræðileg gögn og mun Sveinn Agnarsson forstöðumaður stofnunarinnar annast það fyrir hennar hönd. „Utanríkisráðuneytið mun hér eftir sem hingað til beita sér fyrir að samráð verði haft um framvindu málsins, þ. á m. við fulltrúa hreyfinga sem beittu sér gegn þeim samningum sem gerðir voru um lyktir málsins á fyrri stigum og nýta þekkingu þeirra og sambönd til stuðnings málsvörninni," segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins vegna málsins.
Mest lesið Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Neytendur Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Loðnumælingar töluvert undir væntingum Viðskipti innlent Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Atvinnulíf Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Viðskipti erlent Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Sjá meira
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki