Deloitte harmar "aðför“ sjávarútvegsráðherra að fyrirtækinu 16. maí 2012 12:34 Deloitte.
Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hafnar öllum þeim ávirðingum sem Sjávarútvegsráðuneytið setur fram varðandi fyrirtækið, í umsögn sinni í gær um skýrslu fyrirtækisins sem send var atvinnuveganefnd 23. apríl. Þá er þeirri „aðför" sem Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, hefur gert að fyrirtækinu á opinberum vettvangi mótmælt. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu Deloitte vegna umsagnar sjávarútvegsráðuneytisins um skýrslu Deloitte. Tilkynning Deloitte er orðrétt hér að neðan. „Deloitte hafnar öllum þeim ávirðingum sem sjávarútvegsráðuneytið setur fram í umsögn sinni í gær um skýrslu fyrirtækisins sem send var til atvinnuveganefndar 23. apríl sl. Jafnframt harmar fyrirtækið þá aðför sem sjávarútvegsráðherra hefur gert að Deloitte á fundum og opinberum vettvangi í tengslum við sjávarútvegsfrumvörpin. Deloitte telur að frumvörpin um stjórn fiskveiða sem nú liggja fyrir Alþingi séu illa undirbúin og stórgölluð. Starfsemi Deloitte byggist á trausti og áreiðanleika enda óhæði grundvallarþáttur í starfsemi Deloitte. Við fögnum faglegri umræðu og gagnrýni á okkar vinnu en vísum öllum dylgjum um vafasöm vinnubrögð á bug líkt og ráðuneytið hefur haldið fram í umsögn sinni um skýrslu Deloitte. Helsta gagnrýni ráðuneytisins hefur verið á forsendur Deloitte í útreikningum um afgerandi stærðir líkt og fjárfestingar og fjármagnskostnað. Ágreiningur um fjárfestingar snýst um hvort byggja eigi á gömlum óverðleiðréttum fjárhæðum frá því fyrir hrun eða raunfjárfestingarþörf sjávarútvegsins miðað við núverandi verðlag og gengi eins og Deloitte styðst við. Til einföldunar má benda á að ekki er hægt að kaupa nýjan fjölskyldubíll í dag á sama verði og fyrir hrun. Í skýrslu okkar kemur skýrt fram að vaxtaálag íslenskra banka hefur hækkað undanfarin ár og gera má ráð fyrir að vextir muni hækka. Fiskveiðistjórnunarkerfið á að gilda í áratugi og því gangi ekki að miða við stöðu vaxta á þeim tíma í fortíðinni þegar vextir og vaxtaálag voru í sögulegu lágmarki. Deloitte telur að frumvörpin um stjórn fiskveiða sem nú liggja fyrir Alþingi séu illa undirbúin og stórgölluð. Þetta staðfestir umsögn óháðs sérfræðihóps sem tilnefndur var af atvinnuveganefnd. Kemst hann m.a. að þeirri niðurstöðu að í ljósi þeirra fjölmörgu ágalla sem á frumvarpinu eru, sé niðurstaðan sú að umfang gjaldtöku sé langt umfram það sem útgerðin getur staðið undir og verulegra breytinga sé þörf á aðferðafræði frumvarpsins. Deloitte mun senda inn síðar í dag umsögn til atvinnuveganefndar Alþingis þar sem gagnrýni og ávirðingum ráðuneytisins verður svarað með ítarlegum hætti. Jafnframt verður fjölmiðlum sent afrit af þeirri umsögn."
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira