Viðskipti innlent

Vodafone hagnast um 206 milljónir

Vodafone hagnaðist um 206 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn jókst um 150 milljónir króna á milli ára. Hagnaður félagsins fyrir skatta, fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var tæplega 1,4 milljarðar króna sem er um fimmtungi meira en Vodafone hagnaðist um á sama tímabili í fyrra.

Heildartekjur Vodafone jukust um fimm prósent á milli ára og voru um 6,5 milljarðar króna. Aukningin var mest í sjónvarpsþjónustu þar sem hún nam 19 prósentum. Að sama skapi jókst rekstrarkostnaður um fimm prósent.

Vodafone var með 29,3 prósenta markaðshlutdeild á farsímamarkaði í fyrra. Félagið stefnir að því að verða skráð í Kauphöll Íslands á fjórða ársfjórðungi 2012. - þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×