Viðskipti innlent

Jón í Jónshúsi telur að kráin hans Jónasar muni lifa af

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þrátt fyrir mikla erfiðleika, telur Jón Runólfsson í Jónshúsi í Kaupmannahöfn að hin sögufræga krá Hviids Vinstue við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn muni lifa af. Eins og greint var frá í gær berst kráin nú í bökkum og framtíð hennar er óljós vegna breytinga á neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar sem raskar aðgengi að kránni. Eins og margir vita er kráin Íslendingum að góðu kunn, enda sótti skáldið Jónas Hallgrímsson þangað mikið á árum sínum í Kaupmannahöfn.

Per Möller núverandi eigandi Hviids Vinstue sagði í samtali við danska blaðið Politiken í gær að hann hafi tapað sem svarar um 27 milljónum íslenskra króna á undanförnu eina og hálfa árinu eða frá því að framkvæmdirnar hófust. Jón í Jónshúsi segist koma þarna á kránna af og til. „Þegar það koma Íslendingar sem hafa sögulegan áhuga og vilja feta í fótspor þá hefur það komið fyrir," segir Jón.

Hann segist hafa fylgst mikið með framkvæmdunum. „Þetta er auðvitað mjög erfitt fyrir þennan stað en ég hef nú á tilfinningunni að þeir lifi þetta af," segir hann. „Ætli þetta sé nú ekki svolítið bara veitingamaðurinn að láta vita af sér," segir hann. „Þessi staður hefur lifað af alls kyns hremmingar í gegnum tíðina þannig að ég veit ekki hvort þetta er það versta, en þetta er ábyggilega býsna erfitt," segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×