Viðskipti innlent

Bréf Össurar lækkuðu um tvö prósent - veltan um 90 milljónir

Gengi bréfa Össurar lækkaði um 1,97 prósent í dag og er gengi bréfa félagsins nú 199. Velta í viðskiptum með bréfin nam 9,3 milljónum króna. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 0,28 prósent í viðskiptum upp á 7,7 milljónir. Gengi bréfa félagsins er nú 7,08. Mesta veltan var með bréf Haga, eða sem nam 41 milljón. Gengi bréfa félagsins lækkaði um 0,83 prósent eða niður í 18. Heildarveltan í viðskiptum dagsins á íslenska hlutabréfamarkaðnum nam 89,7 milljónum króna.

Sjá má ítarlegar upplýsingar um gang mála á íslenska markaðnum hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×