Viðskipti innlent

Hvergi betri hlutabréfaávöxtun en hér á landi

Magnús Halldórsson skrifar
Ávöxtun á skráðum hlutabréfamarkaði Nasdaq OMX Nordic hér á landi frá síðustu áramótum hefur verið betri en víðast hvar annars staðar í heiminum, þegar hlutabréfavísitölur eru bornar saman miðað við stöðuna eins og hún var í gær. Þannig hefur OMX vísitalan hér á landi hækkað um 12,92 prósent frá áramótum, á meðan hlutabréfamarkaðir í Bretlandi og Frakklandi hafa sýnt neikvæða þróun frá áramótum. Lækkunin hefur verið um 0,8 prósent í Bretlandi og þrjú prósent í Frakklandi.

Vísitalan sem kemur næst á eftir þeirri íslensku er sú danska en þar hefur hækkunin verið 11,2 prósent frá áramótum. Nasdaq vísitalan bandaríska hefur hækkað um 10,3 prósent á sama tímabili.

Víða á Norðurlöndum og í Evrópu hafa vísitölur lítið hækkað. Þannig hefur vísitalan í Noregi hækkað um ríflega eitt prósent, sænska vísitalan um 0,42 prósent og finnska vísitalan hefur þróast á verri veg en allar aðrar, eða lækkað um 6,35 prósent. Meðaltalið á Norðurlöndunum er hækkun upp á 1,95 prósent. DAX vísitalan í Þýskalandi hefur hækkað um 5,61 prósent sem er áberandi best meðal stórþjóða Evrópu.

Sjá má yfirlit yfir stöðu helstu vísitalna hér að neðan, samkvæmt upplýsingum sem fengnar eru frá Nasdaq OMX Kauphöll Íslands. Undir „Change" eða breytingu, má sjá hvernig þróunin hefur verið í prósentum talið í hverri kauphöll fyrir sig.

Symbol Index ValueIndex ValueChange
  27.6.201230.12.2011 
OMXC20Copenhagen433,6316908389,948945311,20%
OMXH25Helsinki1818,7689421942,064663-6,35%
OMXI6ISKIceland1027,221573909,661019812,92%
OMXN40Nordic917,3172614899,7493321,95%
OMXS30Stockholm991,9729841987,85307420,42%
OBXOslo361,48357,61,09%
FTSE 100London5523,925572,28-0,87%
CAC 40Paris3063,123159,81-3,06%
DAXFrankfurt6228,995898,355,61%
NASDAQ CompU.S.2875,322605,1510,37%
S&P 500U.S.1331,851257,65,90%
Dow JonesU.S.12627,0112217,563,35%





Fleiri fréttir

Sjá meira


×