Segja Heiðar Má fara með rangt mál 13. júlí 2012 12:15 Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir.
Tveir hagfræðingar á rannsókna- og spádeild Seðlabankans segja að Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir fari með rangt mál þegar hann fullyrði að kaupmáttur hér sé á pari við það sem hann var árið 1993. Þeir segja Heiðar tvíreikna gengisáhrifin inn í útreikninga sína. Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur segir í viðtali við viðskiptablað Moggans í gær að kaupmáttur launa sé svipaður því sem hann var árið 1993. Þar gagnrýnir hann peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands og segir að til að komast að þeirri niðurstöðu að launastig sé sambærilegt því sem það var árið 2006 hafi ekki verið tekið tillit til verðbólgu. Slíkan samanburð telur Heiðar Már bera vitni um að peningaglýju. Tveir ungir hagfræðingar á rannsókna og spádeild Seðlabankans, Bjarni Geir Einarsson og Jósef Sigurðsson, segja í athugasemd sem þeir sendu fjölmiðlum í gær að nokkrar staðreyndavillur séu í máli Heiðars. Þeir segja Heiðar skoða laun á föstu föstu verðlagi sem þýði að leiðrétt sé fyrir verðbólgu og höfð í alþjóðlegum myntum. Þá fullyrða þeir að heiðar leiðrétti bæði fyrir þróun verðlags og gengis. Í slíkum samanburði sé gengisþátturinn tvítekinn því gengisbreytingar hafi bein áhrif á verðbólgu gegnum innflutning á erlendum vörum. Þeir Bjarni og Jósef segja að ef skoðuð sé þróun rétt reiknaðs kaupmáttar komi í ljós að kaupmáttur launa sé nú um 9,5 prósent lægri en árið 2006 en svipaður því sem hann var 2004.
Mest lesið Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira