Kerfishrun afsaki ekki meint brot á tilskipun 19. apríl 2012 08:30 Hafnað Í andsvörum ESA við málsvörn Íslands fyrir EFTA-dómstólnum segir meðal annars að íslensk stjórnvöld hafi mismunað innistæðueigendum eftir löndum. Mynd/Efta-dómstóllinn
Tilskipun um innistæðutryggingar gildir þrátt fyrir kerfishrun. Þetta kemur fram í andsvörum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) við málsvörn Íslands í Icesave-málinu. Andsvörin voru birt á vef utanríkisráðuneytisins í gær, en þar kemur fram að afstaða ESA sé óbreytt. Ísland hafi brotið gegn tilskipuninni og eigi að bera kostnaðinn af endurgreiðslu lágmarksinnistæðutryggingar til innistæðueigenda í Hollandi og Bretlandi. Í andsvörunum segir að ekki sé hægt að ætlast til þess að innistæðutryggingakerfi geti staðið undir heilu bankakerfi, en komi til hruns þurfi samt að vera hægt að bregðast við. „Það getur einfaldlega ekki hafa verið markmið ESB-löggjafarinnar þegar tilskipunin var innleidd að vernd á innistæðum verði minni eftir því sem áhætta innistæðueigenda aukist,“ segir þar. Þá er áréttað að innistæðueigendum hafi verið mismunað. Falskan tón slái við í málflutningi Íslands um að allir hafi setið við sama borð þar sem enginn hafi fengið greitt út tryggingasjóði. Innistæðueigendur á Íslandi hafi notið séraðgerða. Annars vegar þegar innistæður þeirra voru færðar í nýju bankana og aðgangur að þeim hélst óskertur. Í annan stað voru innistæður á Íslandi tryggðar að fullu. Undirbúningur að gagnsvörum íslenskra stjórnvalda er þegar hafinn og miðað er við að þau verði lögð fram innan tilskilins frests, 11. maí næstkomandi, að undangengnu samráði við utanríkismálanefnd. - þj
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira