Ákærður fyrir sendiráðsfléttu 19. apríl 2012 08:00 Aron Pétur Karlsson
Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur athafnamanninum Aroni Pétri Karlssyni fyrir fjársvik vegna sölu á stórhýsi við Skúlagötu til Kínverska alþýðulýðveldisins í janúar 2010. Í húsinu er nú sendiráð Kínverja hér á landi. Samkvæmt ákærunni hlunnfór Aron Pétur Arion banka, Glitni og Íslandsbanka um 300 milljónir með sölunni. Bankarnir þrír áttu veðrétt í húsinu fyrir samtals rúman milljarð króna. Eigendur, Aron og faðir hans, Karl Steingrímsson í Pelsinum, kynntu bönkunum 575 milljóna króna kauptilboð í húsið frá indversku fyrirtæki og bönkunum leist ágætlega á tilboðið miðað við ástandið á fasteignamarkaði þótt það væri langtum lægra en veðkröfurnar. Því var fallist á að húsið yrði selt og afgangi skuldanna aflétt. Í ljós kom hins vegar að húsið var selt kínverska ríkinu undir sendiráðsbústað og að verðið hafi ekki verið 575 milljónir heldur 870 milljónir. Kaupin höfðu gengið í gegn áður en skuldunum var aflétt. Grunur er um að tilboð Indverjanna hafi verið sýndartilboð, lagt fram til að eigendurnir gætu hagnast um tæpar 300 milljónir. Feðgarnir voru yfirheyrðir vegna málsins á sínum tíma, auk lögmannsins Gísla Gíslasonar, sem var tengiliður við Indverjana, og fasteignasalans Guðmundar Th. Jónssonar. Grunur féll á þá tvo síðastnefndu vegna þess að samtals fengu þeir tæpar 70 milljónir í þóknun vegna aðkomu sinnar að viðskiptunum. Aron er hins vegar einn ákærður. Bankarnir gera samtals um 150 milljóna króna bótakröfu í málinu. - sh
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira