Hjón í öryrkjaíbúð í vikulöngu vatnsbaði 19. apríl 2012 08:30 Ísskápurinn er horfinn úr innréttingunni og fatan stendur á miðju gólfi til að taka við vatnsflaumnum úr eldhúsljósinu. Fyrir nokkrum árum sendi Guðberg frá sér bókina Þjófur, fíkill, falsari sem hann kvað vera sjálfsævisögu síbrotamanns. Fréttablaðið/Stefán
Guðberg Guðmundsson og Rósa Björnsdóttir þurftu í eina viku að búa við vatnsleka í íbúð Öryrkjabandalagsins í Mánatúni og kenna um seinagangi tryggingafélags. Vatn pípti niður úr lofti eldhússins sem var rafmagnslaust. „Ísskápurinn er úti á gólfi og ég þarf að laga kaffi inni í þvottahúsi,“ segir Guðberg Guðmundsson, eldri borgari sem býr í íbúð Öryrkjabandalagsins á Mánagötu 2 og hefur frá því í síðustu viku glímt við stöðugan vatnsleka ofan úr eldhúsloftinu. Guðberg segir lekann hafa uppgötvast eftir að rafmagn fór af íbúðinni aðfaranótt fimmtudags í síðustu viku. Vegna ótrúlegs seinagangs hjá tryggingafélagi hússins hélt einfaldlega áfram að leka í sex daga. Í gær fengu pípulagningamenn loks að komast að upptökum lekans á hæðinni fyrir ofan íbúð Guðbergs og Rósu Björnsdóttur konu hans. „Þegar rafvirkinn opnaði ljósastæðið í eldhúsinu var kúpullinn fullur af vatni og hann fékk bara gusuna yfir sig,“ lýsir Guðberg sem allan tímann hefur safnað vatni í fötu vegna lekans úr rafmagnsdósinni. Hann kveðst ekki hafa þorað að fara frá í kvöldvinnu sína sem símasölumaður sem hann sinni til að drýgja ellilífeyrinn. Ekkert rafmagn hefur verið í eldhúsinu fyrir utan á eldavélinni sjálfri og Guðberg kveðst áhyggjufullur yfir rafmagninu. „Allt sem heitir rafmagn á að hafa forgang,“ segir hann og bendir á að kona hans sé með lungnasjúkdóm og háð súrefni úr vél sem gangi fyrir rafmagni og þá sé ekki hálf sagan sögð: „Rósa er líka með kæfisvefnsvél sem þarf rafmagn. Hún hefur lent í fjórum bílslysum, er spengd á baki og það er búið að skipta um báða hnjáliði. Svo fékk hún eldhúsinnréttingu á höfuðið og þá sködduðust í henni taugar.“ Húsið í Mánatúni 2 er aðeins tíu ára gamalt en Guðberg segir fjölmörg tilvik um galla hafa komið upp. Hann telur það hugsanlega skýra seinagang tryggingafélagsins sem sé einfaldlega orðið þreytt á vandamálum í húsinu. Síðdegis í gær hafði enn ekki náð að stöðva lekann með vissu og pípararnir horfnir á braut. „Rósa er með vottorð um að hún þoli ekki ryk og ef það á að fara að standa hér í stórviðgerðum þá eigum við rétt á því að á meðan verði borgað undir okkur hótelherbergi með aðgangi að öllu,“ segir Guðberg en undirstrikar um leið að þrátt fyrir allt sé frábært að búa í Mánatúni. „Þetta er yndislegur staður í fallegu umhverfi. Við erum afar ánægð og viljum aldrei fara héðan út.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira