Þrefalt fleiri fyrirtæki til sölu ÞSJ skrifar 30. janúar 2012 11:00 Gunnar Andersen, forstjóri FME.
Félögum í óskyldum rekstri í eigu viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja hefur fækkað um sjö frá 1. nóvember síðastliðnum. Þau voru þá 132 talsins en eru nú 125. Félögum sem eru komin í formlegt söluferli hefur þó fjölgað mikið á síðustu þremur mánuðum. Þau voru 14 í nóvember en eru nú 45. Þetta kemur fram í nýjum tölum Fjármálaeftirlitsins (FME) um tímabundna starfsemi lánastofnana sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Samkvæmt lögum mega fjármálafyrirtæki einungis eiga félög í óskyldum rekstri í 12 mánuði hið mesta án þess að leita eftir undanþágu vegna eignarhaldsins. Í tölum FME kemur fram að 26 þeirra félaga sem eru í eigu fjármálafyrirtækja séu innan upphaflegra tímamarka. Önnur hafa sóst eftir, og fengið fresti. Í tölum sem FME birti í nóvember kom fram að bankarnir hefðu frest til áramóta að losa um eignarhald á 66 félögum. Ljóst er að það hefur ekki tekist og flest þeirra félaga hafa fengið viðbótarfresti. Athygli vekur að félögum sem eru í endurskipulagningu fækkar úr 27 í fimm. Að sama skapi hefur félögum sem komin eru í söluferli fjölgað þrefalt og fjórðungi fleiri eru komin í endanlegt slitaferli. Gunnar Andersen, forstjóri FME, telur að aukinn þrýstingur eftirlitsins og mikil umræða um eignarhald banka á fyrirtækjum í óskyldum rekstri hafi haft jákvæð áhrif á vinnslu þessara mála. Mun fleiri félög séu nú komin í söluferli eða endanlega slitameðferð. „Auðvitað viljum við öll sjá þetta gerast hraðar. En þetta er þungt ferli og er að hreyfast í rétta átt. Okkur finnst að umræðan og þrýstingur okkar hafa haft góð áhrif." Að sögn Gunnars þrýstir eftirlitið á að félög séu sett í söluferli ef áætlun liggur frammi um að slíkt eigi að gerast. „Það þarf alltaf að taka til í þessum félögum. Í sumum tilvikum eru þetta félög með til dæmis dótturfélög erlendis sem þarf að taka til í. Slíkt getur seinkað ferlinu. Ef það er lögð fram vel rökstudd umsókn um frest vegna svona aðstæðna þá er hann veittur. En 45 félög eru komin í sölumeðferð. Það er góð þróun." - þsj
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira