Viðskipti innlent

Tapið á rekstri Farice eykst milli ára

Taprekstur Farice jókst á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar um uppgjörið segir að tapið í ár hafi numið tæpum 4,8 milljónum evra eða sem svarar til 730 milljóna króna. Á sama tímabili í fyrra nam tapið 3,7 milljónum evra.

Tekjur Farice á fyrstu sex mánuðum ársins námu 5,3 milljónum evra og er það um 100 þúsund evrum undir áætlunum félagsins.

Fram kemur í uppgjörinu að Farice reiknar með að samstarfssamningur félagsins við hið opinbera verði endurnýjaður fyrir árslok.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×