Viðskipti innlent

Enn hækkar gengi bréfa Icelandair

Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 0,28 prósent í dag og er gengið nú í 7,1. Gengi bréfa félagsins hefur hækkað mikið undanfarin ár en fyrir tæplega þremur árum var það 2,5, þegar það var endurskipulagt og nýjir hluthafar komu að félagið. Þeir fjárfestar sem keyptu hlutafé á genginu 2,5 hafa því hagnast vel á fjárfestingu sinni.

Heildarvelta í viðskiptum með hlutabréf í Nasdaq kauphöll Íslands nam 244 milljónum króna í dag.

Sjá má ítarlegri upplýsingar íslenska markaðinn hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×