Skattahækkun á ferðaþjónustu gengur ekki upp 30. ágúst 2012 19:00
Ferðaþjónustan ræður ekki við hækkun á virðisaukaskatti í ferðaðþjónustu og mun lenda í miklum rekstrarerfiðleikum ef af henni verður. Þetta segir Alexander Eðvardsson sérfræðingur á hjá KPMG sem skoðað hefur rekstur fyrirtækja í ferðaþjónustu, en afkoman í greininni er ekki nægilega góð, þrátt fyrir mikla fjölgun ferðamanna. Aldrei hafa komið fleiri ferðamenn til landsins á ári en í fyrra, en þeir voru 565 þúsund. Allt stefnir í að ferðamennirnir verði fleiri á þessu ári. Alexander G. Eðvardsson, sérfræðingur hjá KPMG, segir það hafa komið á óvart hversu þungur reksturinn í ferðaþjónustunni væri. En af 35 hótel og gististöðum (18 í Reykjavík og 17 á landsbyggðinni) sem skoðuð voru, var reksturinn hjá neikvæður í Reykjavík um tæplega 600 milljónir í fyrra en jákvæður um tæplega 200 milljónir á landsbyggðinni. Þarna vegur þungt meiri húsnæðiskostnaður í Reykjavík og meiri skuldsetning. „Miðað við okkar skoðun, sem byggðist á ítarlegum rekstrargögnum frá fyrirtækjunum sjálfum, þá geta þessi fyrirtæki ekki borið hækkunina á virðisaukaskattinum, hún gengur ekki upp, þar sem það myndi skerða samkeppnishæfnina og veikja reksturinn, sem er veikur og viðkvæmur fyrir. Allar sviðsmyndir sem við settum upp sýndu að ferðaþjónustan gæti ekki tekið á sig þessa hækkun, og að ríkissjóður myndi heldur ekki fá meira í kassann, til lengri tíma litið," sagði Alexander. Athyglisvert er að skoða rekstur þessara hótela og gistiheimila sem KPMG skoðar í samanburði við hálfsuppgjör HB Granda sem birt var í gær. Heildartekjur í gistiþjónustu í Reykjavík, svo dæmi sé tekið, námu um 4,7 milljörðum króna í fyrra, sem er einungis litlu meira en rekstrarhagnaður HB Granda á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Sjá má glærur, sem sýndar voru á fundi KPMG í morgun, hér.
Mest lesið Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent