Segir tekjur af gistináttaskatti ekki ofmetnar Höskuldur Kári Schram skrifar 26. desember 2012 13:35 Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra.
Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra, vísar því á bug að ríkið sé ofmeta tekjur af hækkun virðisaukaskatts á hótel og gistirými. Gert er ráð fyrir því að skatturinn skili um 550 milljónum króna í ríkiskassann en ferðaþjónustuaðilar telja að þetta sé ofmat upp á allt að 300 milljónir. Virðisaukaskattur á hótel- og gistirými - hinn svokallaði gistináttaskattur - hækkar úr sjö prósentum í fjórtán fyrsta september á næsta ári. Upphaflega átti skatturinn að taka gildi 1. maí en fjármálaráðherra frestaði gildistökunni um fjóra mánuði til að bregðast við gagnrýni ferðaþjónustuaðila. Skatturinn átti að skila 1,1 milljarði í ríkiskassann á næsta ári en eftir breytingu er áætlað að hann skili 550 milljónum króna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar sagði í fréttum Stöðvar tvö á laugardag að þessir útreikningar byggi á þeirri forsendu að ferðaþjónustuan velti jafn miklu á haustin og á sumrin. Veltan sé hins vegar miklu minni á haustin og því sé verið að ofmeta tekjur ríkissjóðs um allt að 300 milljónir. Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra, vísar þessu á bug og segir að gagnrýni ferðaþjónustuaðila byggi á misskilningi. Í fyrstu frumvarpsdrögum að hækkun gistináttaskatts hafi tekjuáætlun byggt á veltutölum frá síðasta ári en eftir að ákveðið var að fresta gildistökunni hafi tekjuáætlun miðast við veltuna í ár. „Þegar við síðan í lokin erum að ljúka okkar tillögugerð í þinginu þá er kominn miður desember þannig að þá höfum við betri mynd af árinu 2012. Það hafði bara orðið það mikil aukning í komu ferðamanna, sem er ánægjulegt, og það var því eðlilegra að miða við nýjar tölur af því að við höfðum þær. Það er það sem gerist í þessu tilfelli. Þess vegna lækkar talan með þessum hætti við breytingar í þriðju umræðunni," segir Katrín. Þannig að þessi tala eins og birtist í ykkar áætlunum hún mun væntanlega standa að þínu mati? „Þarna erum við hreinlega að miða við tölur ársins 2012, þannig að þessar tölur eiga að standa. Þær eru miklu nýrri. Það er betra að miða við nýjar tölur en gamlar og ef menn hefðu uppfært tölurnar fyrir sumar líka þá hefðu þær hækkað," segir Katrín.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira